Vorið 2022 lagði ég af stað í rúmlega ársferð á húsbíl um Evrópu. Ég keyrði um 50.000 km og heimsótti 30 lönd í ferðinni. Á þessum vef er ferðasagan þar sem ég bloggaði reglulega um það sem fyrir augum bar. Eftir heimkomu breytti ég vefnum í fréttavef um húsbílaferðir í Evrópu þar sem finna má viðtöl við húsbílafólk og ýmsan fróðleik um húsbílaferðir í Evrópu.
Ársferðinni minni lauk haustið 2023, þá seldi ég húsbílinn og keypti sendibíl sem ég innréttaði sem húsbíl. Vorið 2024 lagði ég af stað í þriggja mánaða húsbílaferðalag um Evrópu. Núna er húsbíllinn staðsettur í Austurríki og ég er á leið þangað í næsta ferðalag sem stendur yfir í vetur.
Blogg frá húsbílaflakki mínu um Evrópu
Hjólað frá Garmisch til Garda
Í byrjun júní hjólaði ég með vinkonum mínum frá Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi, yfir Alpana og til Gardavatns á Ítalíu. Leiðin er um 330 km löng, að mestu eftir góðum hjólastígum, í stórkostlegu landslagi um Alpana. Ég notaði hjólasíðuna og appið…
lesa meira
Fjölskylduhittingur í Danmörku
Í maí keyrði ég til Danmerkur að hitta ættingja og vini. Fyrst systur mína og fjölskyldu sem býr rétt hjá Sönderborg og svo vini í Kaupmannahöfn. Danmörk er eins og allir vita eitt flatasta land í Evrópu og því var…
lesa meira
Brunað gegnum Þýskaland
Síðustu vikur hef ég verið á flakki um Austurríki, Þýskaland og Danmörk. Ég keyrði frá Austurríki norður Þýskaland til Danmerkur og hitti þar ættingja og vini. Hér eru nokkrar þær borgir í Þýskalandi sem ég skoðaði og gisti á tjaldstæðum…
lesa meira
Fjallvegir í Ítölsku Ölpunum
Frá Slóveníu hélt ég eftir fjallvegi SS54 yfir til Ítalíu, sem liggur á mörkum þriggja landa, Ítalíu, Austurríki og Slóveníu og kom niður í bæinn Tarvisio. En hjólaleiðin frá Ölpunum að Adríahafi liggur einmitt í gegnum Tarvisio og ég því…
lesa meira
Triglav þjóðgarðurinn í Slóveníu
Frá Rauris í Austurríki hélt ég áfram leið minni um Alpana áleiðis til Slóveníu. Þar ætlaði ég að skoða þjóðgarð Slóveníu sem heitir Triglav og er stutt frá hinu fræga Bled vatni. Hjólað í kringum Wörthersee Á leiðinni frá Austurríki…
lesa meira
Alpen – Adria hjólaleiðin
Þriggja mánaða húsbílaferð framundan Í lok maí lagði ég af stað með Norrænu í þriggja mánaða húsbílaferðalag um Evrópu á sendibílnum sem ég hef verið að innrétta sem húsbíl í vetur. Ferðin hófst á nokkra daga ferðalagi um Ísland og…
lesa meira
Síðustu dagarnir
Nú styttist í heimferð eftir þessa rúmlegu árslöngu húsbílaferð um Evrópu. Ferðin hefur verið eitt stórt ævintýri og ótal margir áhugaverðir staðir sem ég hef heimsótt. Eftir því sem ég skoða fleiri staði þá sé ég hversu marga staði ég…
lesa meira
Fleiri fjallvegir
Eftir að stórfjölskyldan var farin heim á leið þá var komið að því að nýta síðustu þrjár vikurnar í Ölpunum. Á þessum árstíma streyma ferðamenn allstaðar úr Evrópu í Alpana og vinsælir ferðamannastaðir þéttsetnir. Ég ákvað því að skoða nokkra…
lesa meira
Fjallvegir í Ölpunum
Arlbergpass Eftir hjólaferðina með Dóná þá flakkaði ég um nokkra fjallvegi í Austurríki, Ítalíu og Sviss. Ég byrjaði á að keyra frá Austurríki til Sviss og keyrði þá yfir Arlbergpass, en Arlberg göngin eru lokuð núna þangað til í haust…
lesa meira
Hjólað með Dóná
Síðustu viku hef ég verið að hjóla meðfram Dóná með vinkonum mínum frá Íslandi. Ég sótti þær á flugvöllinn í Munchen og við keyrðum til Passau í Þýskalandi, við Austurrísku landamærin, þar sem ég skildi húsbílinn eftir. Hjólaleiðin meðfram Dóná…
lesa meira
Aftur í Alpana
Að keyra heilu dagana eftir hraðbrautum í Þýskalandi býður ekki upp á mikla náttúrufegurð né fjölbreytni í landslagi. Umferðarteppur (Stau), vegaframkvæmdir, trukkar, akrar og skógar. Það gleður mig því alltaf jafn mikið þegar ég nálgast Alpana og fer að keyra…
lesa meira
Be-Ne-Lux löndin
Frá Þýskalandi keyrði ég í vesturátt og eyddi nokkrum dögum í Hollandi, Belgíu og Luxembourg. Hjólað við Mosel Áður en ég yfirgaf Þýskaland þá ákvað ég að fara á gamlar slóðir og fara að ánni Mosel. Þangað hef ég oft…
lesa meira
Vínhéröð Frakklands
Frá Svartaskógi í Þýskalandi hélt ég í vestur, yfir ánna Rín, til Frakklands. Þar dólaði ég í nokkra daga í vínræktarhéraðinu Alsace sem liggur á sléttu vestanmegin við Rín. Í héraðinu eru margir litlir fallegir bæir og þar er mikil…
lesa meira
Frá Sviss til Þýskalands
Schaffhausen í Sviss Eftir hjólaferðina kringum Bodensee keyrði ég í hérað í Sviss sem heitir Schaffhausen og er eiginlega inn í Þýskalandi, eins konar tangi út úr Sviss í Þýskaland. Þetta er mjög fallegt svæði með samnefndri borg, Schaffhausen og…
lesa meira
Hjólað og gengið í Sviss
Síðustu daga hef ég verið í Sviss en þar er stórkostlegt landslag og gaman að keyra, ganga og hjóla. Veðrið hér hefur verið frekar svalt, en þó sól og blíða inn á milli. Margir fjallvegir eru enn lokaðir vegna snjóa…
lesa meira
Sviss og N-Ítalía
Vötnin í Sviss Í síðustu viku keyrði ég um fjallahéröð Sviss í austurhluta landsins. Veðrið var frekar svalt svo ég ákvað að halda mig á láglendi við vötnin Zugersee, Wierwaldstättsee, Ägerisee og Unersee. Þessi vötn eru inn á milli hárra…
lesa meira
Páskarnir í Ölpunum
Þrátt fyrir að nú sé apríl hálfnaður þá gerði vorið hlé á komu sinni yfir páskana í Ölpunum. Síðustu daga hefur rignt töluvert og snjóað í fjöll. Frá blíðunni á Ítalíu fórum við mæðgur til Austurríkis. Ég þurfti að láta…
lesa meira
Napoli og Amalfi
Lestarferð frá Róm Þar sem húsbíllinn er með brotna hliðarrúðu þá ákváðum við að geyma hann í öruggri geymslu í Róm og taka lest suður til Napoli og þaðan að Amalfi ströndinni. Ég pantaði gistingu á hóteli í Sorrento, sem…
lesa meira
Róm
Vinkonur í heimsókn Frá Toscana keyrðum við suður til Rómar en ég var búin að mæla mér mót við tvær íslenskar vinkonum mínar á flugvellinum í Róm. Við sóttum þær á flugvöllinn og ferðuðumst með þeim í fimm daga. Gistum…
lesa meira
Sveitavegir í Toscana
Síðustu viku þræddum við hlykkjótta sveitavegi í Toscana héraði á Ítalíu. Við gistum á ólífubúgörðum og litlum tjaldstæðum í hlíðum Toscana. Við fórum í vínsmökkun, gönguferðir um sveitirnar og sátum á kaffihúsum í litlu ítölsku þorpunum…. Meðal þeirra bæja sem…
lesa meira
Norður-Ítalía
Feneyjar Frá vínbóndanum keyrðum við áfram í suður átt og stoppuðum m.a. í bænum Cividale del Friuli, sem er fallegur bær stutt frá Udine. Þaðan áfram til Feneyja þar sem við gistum í tvær nætur á fínu tjaldstæði rétt við…
lesa meira
Síðustu skíðadagarnir í bili
Nú er farið að vora í Ölpunum og við mæðgur erum lagðar af stað suður í sólina á Ítalíu. Í síðustu viku fórum við á tvö ný skíðasvæði, í Werfenweng og Wildkogel Arena. Skíðasvæðið Werfenweng Werfenweng er lítill bær fyrir…
lesa meira
Skíðað í febrúar
Febrúar er annamesti skíðamánuður ársins á öllum skíðasvæðum hér í Ölpunum. Þá eru vetrarfrí í Evrópu og segja má að allt sé pakkað í skíðabæjunum. Fullbókað er á hótlelum og öðrum gististöðum. Í vetur hefur ásókn aukist í litlu skíðasvæðin…
lesa meira
Námskeið um húsbílaferðir í Evrópu
Síðustu vikur hef ég verið að undirbúa námskeið fyrir þá sem eiga sér draum um að ferðast á húsbíl um Evrópu. Mig langaði að hjálpa þessu fólki með því að miðla minni reynslu af húsbílaflakki mínu um Evrópu. Og nú…
lesa meira
Skíðað með íslenskum vinum
Síðustu daga hef ég flakkað á milli skíðasvæða í Austurríki og hitt nokkra íslenska vini sem eru í skíðaferðum í Ölpunum. Ég fór líka á gönguskíðasvæðið í Zell am See og í Rauris á meðan Íris skrapp í vikuferð til…
lesa meira
Husbill.com á samfélagsmiðlum
Núna er ég búin að stofna Facebook síðu fyrir husbill.com en einnig er ég með Instagram síðu þar sem ég set reglulega inn myndir af ferðalaginu. Í síðustu viku var ég með könnun meðal fólks sem hefur áhuga á húsbílaferðum…
lesa meira
Púðursnjór á skíðasvæðunum
Síðustu daga hefur snjóað og snjóað í Austurríki og það gleður skíðafólkið og rekstraraðila skíðasvæðanna hér í Ölpunum. Skíðasvæðin í Rauris og Wagrain Í síðustu viku fórum við á skíðasvæðin í Rauris og Wagrain, þar sem við hittum íslenska vini…
lesa meira
Áramótin í Sviss
Eftir jólin í Rauris héldum við mæðgur af stað á húsbílnum áleiðis til Sviss. Við gistum tvær nætur á leiðinni og heimsóttum skíðasvæði í Alpachtal, sem heitir Ski Juwel. Alpachtal skíðasvæðið Þetta skíðasvæði er hluti af Superskicard skíðasvæðunum og er…
lesa meira
Ungverjaland og Slóvakía
Frá Vín keyrði ég yfir landamærin til Ungverjalands. Stefnan var tekin á Budapest þar sem ég hafði mælt mér mót við vinkonur mínar. Við leigðum íbúð í miðbæ Budapest í fimm nætur og áttum dásamlegar stundir þar. Röltum um miðbæinn,…
lesa meira
Haust í Austurríki
Eftir nokkurra daga hvíld í Rauris þá keyrði ég í austurátt með stefnuna á Ungverjaland. Á leiðinni þangað dólaði ég í tvær vikur í Austurríki og þar af fimm daga í höfuðborg landsins, Vín. Í Austurríki er nú að koma…
lesa meiraSomething went wrong. Please refresh the page and/or try again.