Be-Ne-Lux löndin

Frá Þýskalandi keyrði ég í vesturátt og eyddi nokkrum dögum í Hollandi, Belgíu og Luxembourg. 

Hjólað við Mosel

Áður en ég yfirgaf Þýskaland þá ákvað ég að fara á gamlar slóðir og fara að ánni Mosel. Þangað hef ég oft komið og dvalið í nokkrum af litlu bæjunum meðfram ánni. Núna gisti ég á camping í Mehring við Mosel í tvær nætur og hjólaði til Trier áður en ég hélt til Hollands.

Heimsókn í Hollandi

Þegar ég kom til Hollands þá sótti ég Írisi dóttur mína á lestarstöð, en hún var stödd í nágrenninu í interrail ferðalaginu sínu. Við fórum saman til vinafólks sem býr í Hollandi og eyddum helginni með þeim. Mjög skemmtileg helgi í góðra vina hópi, en eitt það skemmtilegasta sem ég geri á þessu ferðalagi er að hitta vini og ættingja. Í Hollandi heimsótti ég líka stærstu húsbílabúð í Evrópu, Obelink í Winterwijk. Risastór húsbíla-og útivistarbúð sem ég mæli með fyrir þá sem eru á ferðinni í Hollandi.

Maastricht

Eftir skemmtilega heimsókn þá hélt ég áfram ferðalaginu um Holland. Ég byrjaði á að keyra Írisi á næstu lestarstöð. Hún heldur nú áfram að ferðast með lestum um Evrópu og næstu áfangastaðir hjá henni eru norðurlöndin. En næsti áfangastaður hjá mér var til Maastricht. Þar gisti ég á húsbílastæði í útjaðri borgarinnar, hjólaði í borgina og skoðaði hana. Maastricht er með elstu borgum Hollands og þar er þekktur og virtur háskóli. Árið 1992 voru Maastricht samningarnir undirritaðir í borginni en þeir marka upphaf Evrópusambandsins.

Hæstu fjöll í hverju landi

Frá Maastricht er stutt á hæsta fjall Hollands, Vaalserberg, ef hægt er að tala um fjall sem er 322 m. Þangað liggur vegur en þar eru einnig landamæri þriggja landa, Hollands, Belgíu og Þýskalands. Þegar þangað var komið ákvað ég að heimsækja líka hæsta fjall Belgíu og hæsta fjall í Luxembourg. Þau eru aðeins hærri, Signal de Botrange (694 m) í Belgíu og Kneiff (560 m) í Luxembourg. Í Luxembourg gisti ég í fallegum smábæ, Clervaux, en þar dvaldi Nóbelsskáldið Halldór Laxnes á sínum tíma. Mjög fínt tjaldstæði þarna í bænum sem ég mæli með.

Frá Be-Ne-Lux löndunum hélt ég aftur til Þýskalands á leið minni suður í Alpana. Meira um það næst.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading