Frá Svartaskógi í Þýskalandi hélt ég í vestur, yfir ánna Rín, til Frakklands. Þar dólaði ég í nokkra daga í vínræktarhéraðinu Alsace sem liggur á sléttu vestanmegin við Rín. Í héraðinu eru margir litlir fallegir bæir og þar er mikil vínrækt. Frá 17.öld hefur héraðið farið á milli þýskra og franskra yfirráða nokkrum sinnum. Þar blandast því þýsk og frönsk menning. Þar eru margir kastalar frá miðöldum og ég skoðaði nokkra þeirra. Í héraði búa tæplega tvær milljónir og stærsta borgin er Strassbourg.

Átthyrndi bærinn
Rétt við landamæri Þýskalands er pínulítill bær, Neuf-Brisach, með mjög sérstakan arkitektúr. Skipulag bæjarins er eins og átthyrnd stjarna og umhverfsi bæinn er hár virkisveggur. Í kringum vegginn er djúp grasivaxin gjá og þegar ég var þarna þá var listasýning ofan í gjánni. Bærinn er frá 17.öld og er á heimsminjaskrá UNESCO. Hann var byggður þegar Frakkar misstu Breisach bæinn, sem er hinum megin við Rín, til Þjóðverja. Nafn bæjarins þýðir nýja Breisach og íbúar eru aðeins um tvö þúsund.










Gamli bærinn Colmar
Colmar er mjög fallegur bær í héraðinu og þriðji stærsti bær Alsace. Bærinn er þekktur fyrir vel varðveittan hluta gamla bæjarins og fjölmörg bygginarlistaverk og söfn. Hann er vinsæll ferðamannabær og mjög gaman að ganga um bæinn. Frá Colmar er arkitekt Frelsisstyttunnar í NY og á einu hringtorgi er risastórt líkan af styttunni.










Kaysersberg
Einn af þeim bæjum sem ég heimsótti var Keysersberg, sem er gamall fallegur bær í héraðinu. Fyrir ofan bæinn er kastali eins og víða í héraðinu. Ég rölti um bæinn og upp að kastalanum en þaðan var fallegt útsýni yfir nágrennabæina.










Dambach-la-Ville, Luneville og hinir litlu bæirnir
Ég keyrði í gegnum marga smábæi, eftir sveitavegum í gegnum vínakra og skóglendi. Í sumum þeirra lagði ég bílnum og gekk um götur bæjanna. Þar var yfirleitt rólegt andrúmsloft, einstaka íbúi á gangi eða að dytta að garðinum sínum. Eldri menn sátu að spjalli á kaffihúsi bæjarins eða konur að koma úr kjörbúðinni. Mjög kyrrlátt og rólegt andrúmsloft í þessum litlu bæjum. Eitt sinn gisti ég á vínakri við smábæinn Saint-Hippolyte og hjólaði þaðan upp í kastalann, Haut-Könegsburg. Mjög fallegur kastali með alls konar gömlum minjum og stríðstólum.

















Frá Frakklandi keyrði ég yfir til Þýskalands. Meira um það í næsta bloggi.