Lestarferð frá Róm
Þar sem húsbíllinn er með brotna hliðarrúðu þá ákváðum við að geyma hann í öruggri geymslu í Róm og taka lest suður til Napoli og þaðan að Amalfi ströndinni. Ég pantaði gistingu á hóteli í Sorrento, sem er lítill fallegur bær stutt frá Amalfi. Lestin frá Róm til Napoli tók tvær klukkustundir og þaðan þurfti að taka lókal lest til Sorrento. Þó að sú leið sé aðeins 50 km þá tók ferðin nærri jafn langan tíma og lestarferðin frá Róm, sem er yfir 200 km. Lókal lestin stoppaði nefninlega á 35 stöðum á leiðinni 😉


Vesúvíus á miðri mynd

Að ferðast með lest er allt öðruvísi ferðamáti heldur en að ferðast á húsbíl. Í lestinni er hægt að hvíla sig, sofa, lesa eða hlusta á tónlist, njóta útsýnisins og standa upp þegar manni hentar. En ókosturinn er að vera háður tímaplani lestarinnar, þurfa að standa ef það er ekkert laust sæti og að geta ekki stoppað þegar ég sé eitthvað áhugavert. Það eru því kostir og gallar við hvoru tveggja, lestarferðalag og húsbílaferðalag. Ég kýs húsbílaferð en væri líka alveg til í að ferðast meira með lestum seinna meir. Lestarnar eru frábær leið til að ferðast á milli borga, til að losna við að keyra inn í stórborgum og að leita að bílastæði.
Sorrento
Við gistum tvær nætur á góðu hóteli í útjaðri Sorrento. Á þessum árstíma er ekki búði að opna öll hótel og víða sáum við að verið var að dytta að og undirbúa opnun á hótelum og gististöðum. Þessa helgi var verið að opna hótelið sem við vorum á og fáir gestir á hótelinu.
Sorrento er fallegur bær á norðanverðum Sorrento skaganaum. Bærinn er þekktur ferðamannabær og þaðan er útsýni yfir Napólí, Vesúvíus, Pompei og eyjuna Capri. Hægt er að taka ferju frá Sorrento til litlu bæjanna á Amalfi ströndinni eða að keyra yfir skagann eftir hlýkkjóttum fjallvegi til Amalfi, það sem við gerðum.











Fallega Amalfi ströndin
Amalfi ströndin er ekki eiginleg strönd, ekki baðströnd, heldur þverhnýpt klettaströnd við sjóinn á Amalfi skaganum. Þar eru nokkur lítil þorp í snarbrattri hlíðinni og mjór hlykkjóttur vegur á milli þeirra. Mjög fallegt. Við tókum rútu frá Sorrento til Amalfi og leiðin tók um einn og hálfan tíma. Mjög falleg leið eftir örmjóum vegum og ótrúlegt að hægt sé að keyra þessa leið á rútu. Ekki er leyfilegt að keyra Amalfi ströndina á húsbíl og því eina leiðin að vera á litlum bíl eða taka sér far með lókal rútunni sem stoppar á nokkrum stöðum á leiðinni. Amalfi bærinn er lítill fallegur bær, byggður nánast inn í klettavegginn og fram í sjó. Bærinn er vinsæll ferðamannabær og á þessum árstíma er alveg nóg pláss fyrir alla. Ég mæli með að heimsækja svona vinsæla ferðamannastaði utan háannartíma, hitastigið er mátulegt, nóg af lausum borðum á veitingatöðum og engar biðraðir. Amalfi er dásamlegur staður og ég á örugglega eftir að koma þangað aftur.


















Brjálaða Napoli
Frá Sorrento héldum við til Napoli þar sem við höfðum hálfan dag á milli lestarferða frá Sorrento til Róm. Napoli er subbuleg borg og umferðin þar er vægast sagt brjáluð. Þar gildir frumskógarlögmálið, þeir hæfustu lifa. Hávaðinn er mikill, flauturnar óspart notaðar og umferðarreglur eitthvað sem enginn sér ástæðu til að fara eftir. En það er gaman að koma til Napoli, að ganga um þröngu göturnar og virða fyrir sér mannlífið. En ég þarf ekkert að fara aftur til Napolí 😉










