Frá Rauris í Austurríki hélt ég áfram leið minni um Alpana áleiðis til Slóveníu. Þar ætlaði ég að skoða þjóðgarð Slóveníu sem heitir Triglav og er stutt frá hinu fræga Bled vatni.
Hjólað í kringum Wörthersee
Á leiðinni frá Austurríki til Slóveníu gisti ég m.a. á tjaldstæði við Wörthersee í Austurríki. Vatnið er í fallegu umhverfi við borgina Klagenfurth í Karnten héraðinu í Austurríki. Það er tæplega 20 ferkílómetra stórt og umhverfis það er 42 km hjólastígur sem ég hjólaði.




Triglav þjóðgarðurinn
Frá Wörthersee keyrði ég yfir landamærin til Slóveníu eftir fáförnum fjallvegi yfir Loibi skarðið og að Bled vatninu. Þaðan inn fallegan dal, Bohinjka dal, sem er hluti af Triglav þjóðgarðinum. Þjóðgarðurinn ber nafn sitt af fjallinu Triglav, sem er hæsta fjall Slóveníu, 2863 m og er í þeim hluta Alpanna sem kallast Julian Alps.





Í þjóðgarðinum eru fjöldi gönguleiða og garðurinn er vinsæl útivistarparadís í landinu, enda eini þjóðgarðurinn í Slóveníu. Hann var fyrst nefndur árið 1926 en formlega opnaður árið 1961 sem verndarsvæði og þjóðgarður. Síðan þá hefur hann verið stækkaður nokkrum sinnum og miklar endurbætur farið fram, merktar gönguleiðir og upplýsingamiðstöðvar. Hann er nú 880 km2 og þekur um 4% af Slóvakíu. Ég hjólaði nokkra hjólastíga og gekk m.a. upp að Savica fossinum, fallegur foss í stórkostlegu umhverfi.










Eftir göngu-og hjólaferðir í Triglav þjóðgarðinum í Slóveníu, hélt ég yfir til Ítalíu þar sem ég flakkaði um Ítölsku Alpana. Meira um það í næsta bloggi 🙂