Febrúar er annamesti skíðamánuður ársins á öllum skíðasvæðum hér í Ölpunum. Þá eru vetrarfrí í Evrópu og segja má að allt sé pakkað í skíðabæjunum. Fullbókað er á hótlelum og öðrum gististöðum. Í vetur hefur ásókn aukist í litlu skíðasvæðin og er það bæði vegna þess að margir forðast fólksfjöldann sem eru á stærri skíðasvæðum og svo er ódýrara að kaupa lyftukort á minni svæðum.

Síðustu vikur höfum við mæðgur heimsótt nokkur skíðasvæði í Austurríki ásamt því að dvelja í Rauris með góðum vinum okkar. Nóg snjór er ennþá í skíðabrekkunum en veðrið hefur verið mjög gott í febrúar og snjórinn í bæjunum að mestu farinn. Það má því segja að hér sé að koma vor þó svo að skiðavertíðinni ljúki ekki fyrr en um páska.
Skíðasvæðið í Rauris
Rauris er lítill bær í Austurrísku Ölpunum og þar er frábært skíðasvæði með löngum og góðum brekkum við allra hæfi. Tíu lyftur eru á svæðinu sem nær upp í rúmlega 2000 m hæð. Skíðasvæðið er fjölskylduvænt, með leikjabraut fyrir krakka, skíðaskólum, sleðabraut og byrjendasvæði. Í brekkunum eru fjórir veitingastaðir og nóg pláss fyrir alla í brekkunum.











Flakkað á milli skíðasvæða
Síðustu daga höfum við verið á flakki um austurhluta Austurríkis og heimsótt nokkur skíðasvæði þar. Við gistum á húsbílastæðum og tjaldstæðum. Við fórum líka á skíði í Kaprun og Kitzsteinhorn þar sem var mikill fjöldi fólks enda svæðið stórt. Það er gaman að kom á ný skíðasvæði og sérstaklega þessi litlu svæði þar sem er færra fólk. Lyfturnar þar eru oft gamlar og brekkurnar þrengri. Þar er samt þó nokkuð af fólki og mikið fjölskyldufólk og skólahópar. Á stærri svæðunum eru nýrri lyftur og breiðari brekkur, en biðröðin við lyfturnar getur verið löng þó hún gangi oft hratt.







Skíðasvæðið Kaprun – Kitzsteinhorn
Þetta skíðasvæði þekki ég mjög vel því að ég bjó í Kaprun fyrir nokkrum árum og fór því oft daglega í heimabrekkuna, Maiskogel. Síðan þá hefur þó margt breyst á skíðasvæðinu, búið að bæta við nýrri lyftum og setja stóran kláf sem nær frá Maiskogel í Kaprun og upp á Kitzsteinhorn jökulinn. Á skíðasvæðinu eru 23 lyftur og 30 skíðaleiðir. Á Maiskogel fjallinu eru mjög flottar brekkur og færra fólk heldur en á Kitzsteinhorn jöklinum, en skíðasvæðið á jöklinum er opið lengur fram á vor og opnar fyrr á haustin. Þar er líka opið í nokkrar vikur á sumrin.










Hochkönig skíðasvæðið
Einn daginn í febrúar fórum við mæðgur á skíðasvæðið í Hochkönig að hitta íslenska vini okkar þar og skíðuðum með þeim í einn dag. Á þessu skíðasvæði eru 34 lyftur og 120 km af skíðabrekkum. Svæðið nær á milli nokkurra fjallstoppa og er hluti af Ski Amade skíðasvæðinu. Svæðið er langt og mjótt, þ.e.nær frá Müllbach í austri til Maria Alm í vestri. Margar brattar og góðar brekkur eru á svæðinu ásamt auðveldari brekkum og hægt er að flakka á milli dala. Hægt er að halda sig í ákeðnum brekkum til að forðast mannfjöldann og losna þannig við langar raðir í lyftum.







Dachstein West skíðasvæðið
Dachstein West skíðasvæðið er stórt, með 45 lyftum og 71 km af skíðaleiðum. Svæðið er stutt frá hinu fræga þorpi Hallstatt sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Við gistum á bílastæði við Hallstatt vatnið og keyrðum svo til Gosau, en skíðasvæðið nær þaðan til Annaberg. Þetta er mjög skemmtilegt skíðasvæði með stórkostlegu útsýni yfir Dachstein fjöllin. Brekkurnar eru breiðar og fínar og hægt að flakka milli fjalla yfir til Annaberg. Lyfurnar eru nýlegar og ekki of margt fólk. Ég mæli 100% með þessu svæði í mögnuðu umhverfi. Þarna er líka mjög flott barnasvæði og brekkur við allra hæfi.







Schneebären – skíðasvæðið í Steiermark
Schneebären skíðasvæðið eru fimm lítil skíðasvæði í austurhluta Austurríkis, í Steiermark héraðinu. Þessi skíðasvæði eru lítil á Austurrískan mælikvarða, með um tíu lyftur á hverju svæði. Við heimsóttum eitt þessara svæða, Die Taublitz, og skíðuðum þar í einn dag. Þetta er að mörgu leyti ólíkt öðrum skíðasvæðum sem við höfum heimsótt. Lyfturnar eru frekar gamlar, stólalyftur, t-lyfur og diskalyftur. Farið er með stólalyftu úr bænum og eiginlega yfir bæinn og upp á sléttu upp á fjalli. Þar voru nokkur lítil hótel og eins konar fjallaþorp, þar sem fólk var á gönguskíðum og snjóþrúgum. Skíðasvæðið er frekar flatt þarna uppi en ágætis brekkur niður fjallið. Það var þoka og snjóblinda þegar við komum en birti svo til þegar leið á daginn. Gaman að koma þarna og sjá öðruvísi skíðasvæði en einn dagur á þessu svæði er nóg. Það væri aftur á móti gaman að koma þarna að sumri til því að landslagið er fallegt.







Schladming-Dachstein skíðasvæðið
Síðasta skíðasvæðið sem við heimsóttum á þessari ferð um austurhluta Austurríkis var hið þekkta skíðasvæði í Schladming. Það er mjög stórt svæði, fyrsta flokks, með frábærum brekkum og nýjum lyftum. Skíðasvæðið er hluti af Ski Amade og nær yfir fjögur fjöll og dalina á milli. Þar eru 77 lyftur og 230 km af skíðabrekkum. Við gistum á tjaldstæði í bænum og eyddum einum degi á skíðasvæðinu. Þetta er frábært skíðasvæði með fjölbreyttum breiðum brekkum, leikjabrautum, stökkpöllum og mörgum veitingastöðum. En stórum stöðum fylgir líka margt fólk og langar raðir í sumar lyftur. Það var þó hægt að skíða yfir í rólegri svæði en flest fólkið var á Planai fjallinu og þar í kring.











Þessa vikuna ætlum við mæðgur að njóta síðustu skíðadaganna í bili áður en við höldu suður á bóginn, til Ítalíu. Meira um það í næsta bloggi.