Púðursnjór á skíðasvæðunum

Síðustu daga hefur snjóað og snjóað í Austurríki og það gleður skíðafólkið og rekstraraðila skíðasvæðanna hér í Ölpunum.

Skíðasvæðin í Rauris og Wagrain

Í síðustu viku fórum við á skíðasvæðin í Rauris og Wagrain, þar sem við hittum íslenska vini okkar. Núna er frábært færi á skíðasvæðunum, nýfallinn púðursnjór og nóg af utanbrautarleiðum. Suma dagar snjóar það mikið að við förum ekki á skíði

Camping Mayrhofen

Um helgina keyrðum við í Zillertal og gistum á tjaldstæðinu í Mayrhofen. Við höfum nokkrum sinnum áður gist á þessu tjaldstæði, en alltaf að sumri til. Tjaldstæðið er opið allt árið og meira að segja innisundlaugin er opin á veturna. Þarna er góð aðstaða til að þurrka skíðaskó og einnig skíðageymsla, veitingastaður og stutt að ganga í miðbæ Mayrhofen. Við dvöldum tvær nætur á tjaldstæðinu í Mayrhofen ásamt Snorra og Ade, sem komu frá Sviss til að skíða með okkur Írisi um helgina.

Skíðasvæðið Zillertal Arena

Skíðasvæðið Zillertal Arena er stærsta skíðasvæði í Ziller dalnum og þar gildir Superskicard skíðakortið. Á svæðinu eru 52 lyftur og 147 km af skíðaleiðum. Skíðasvæðið er mjög fjölskylduvænt og mikið af bláum leiðum, sem henta byrjendum og börnum. Þar eru líka nokkrar ævintýraleiðir með skemmtilegum þrautum á leiðinni. Einnig brettagarður, tímatökubrautir og sérstök barnasvæði. Hægt er að skíða frá Zell am Ziller til Gerlos, Köningsleiten og Hochkrimml. Zillertal Arena er mjög skemmtilegt svæði sem ég mæli með, sérstaklega fyrir fjölskyldufólk. Á laugardeginum var mikil snjókoma, ekkert skyggni og frekar kalt, en sunnudagurinn var góður, þá birti til og púðrið… maður minn.. það var geggjað.

Við keyrðum svo aftur til Rauris á sunnudagskvöld og fórum yfir Gerlos fjallveginn. Þar var töluverður snjór enda búið að snjóa mikið síðustu daga. En vegagerðin í Austurríki, ASFINAG, er fljót að moka og salta vegina og færðin var því fín.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading