Skíðað með íslenskum vinum

Síðustu daga hef ég flakkað á milli skíðasvæða í Austurríki og hitt nokkra íslenska vini sem eru í skíðaferðum í Ölpunum. Ég fór líka á gönguskíðasvæðið í Zell am See og í Rauris á meðan Íris skrapp í vikuferð til Íslands að heimsækja vinkonur sínar.

Skíðasvæðið Zell am See

Á gönguskíðasvæðinu í Zell am See og Kaprun er hægt að velja um nokkra mislanga hringi. Landslagið er frekar slétt en hægt er að fara stærri hringi og ná þar nokkrum brekkum. Umhverfið er fallegt, með útsýni upp á Kitzsteinhorn jökulinn. Ókostir eru að svæðið er á sólríkri sléttu og því bráðnar snjórinn fljótt á svæðinu og því eru ekki allar brautir alltaf opnar.

Ég heimsótti skíðasvæðið í Zell am See og skíðaði þar með góðum vinum. Þá prófaði ég nýtt skíðasvæði sem ég hef ekki farið á áður, Almenwelt Lofer, sem er rétt fyrir norðan Zell am See. Þetta er fjölskylduvænt svæði, ekki stórt, en þegar ég var þar þá var snjókoma og vindur svo að efsti hluti svæðisins var lokaður. Það voru því ekki margar lyftur í boði og allt of margt fólk miðað við fjölda lyfta. Ég stoppaði því stutt og ákvað að heimsækja þetta svæði seinna, í betra veðri. Og auðvitað tók ég svo nokkra skíðadaga í Rauris, á heimasvæðinu.

Þjóðlegar hefðir í Rauris

Á sunnudaginn var mjög þjóðleg hátíð hér í Rauris. Uppúr ellefu fór fólk að streyma í bæinn frá nágrannasveitum og öll bílastæði bæjarins fylltust. Við vorum á leið í fjallið og ákváðum að taka stuttan skíðadag til að missa ekki af viðburðinum í bænum, en við höfðum ekki hugmynd um hvað var í gangi. Það var búið að sturta mörgum bílhlössum af snjó eftir aðal götunni í gegnum miðbæinn, slökkviliðið var mætt á staðinn og fólk raðaði sér meðfram allri götunni. Það var eitthvað spennandi að gerast, krakkar skríktu af spenningi… “þeir eru að koma… þeir eru að koma”… Og svo komu þessir stóru og tignalegu hestar í röðum með alls konar vagna í eftirdragi. Þeir riðu eftir götunni, samtals um þrjátíu vagnar og fengu hver og einn verðlaunaskjöld. Mjög áhugavert og þjóðlegt.

Serfaus -Fiss skíðasvæðið

Á mánudeginum keyrðum við Íris til Serfaus-Fiss þar sem við hittum nokkra íslenska vini okkar sem voru í skíðaferð á vegum Bændaferða. Þetta skíðasvæði er mjög skemmtilegt, margar breiðar og langar brekkur, svartar, rauðar og bláar. Og ekki skemmdi fyrir að veðrið var dásamlegt, heiðskírt en kalt.

Gönguskíðabærinn Seefeld í Tyrol

Frá Serfaus-Fiss fórum við til Seefeld þar sem við hittum fleiri íslenska vini okkar sem voru með gönguskíðahóp á vegum Bændaferða. Í Seefeld er frábært gönguskíðasvæði og þar var margt um manninn. Bærinn er stutt frá Innsbruck og er mjög fallegur, típískur Austurrískur ferðamannabær. Bærinn er ólíkur hefðubundnum skíðabæjum í Austurríki að því leiti að þar voru allir ferðamennirnir með gönguskíði undir hendinni en ekki svigskíði á öxlinni. Ótrúlega fallegur bær sem gaman væri að heimsækja að sumri til.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading