Síðustu viku þræddum við hlykkjótta sveitavegi í Toscana héraði á Ítalíu. Við gistum á ólífubúgörðum og litlum tjaldstæðum í hlíðum Toscana. Við fórum í vínsmökkun, gönguferðir um sveitirnar og sátum á kaffihúsum í litlu ítölsku þorpunum….














Meðal þeirra bæja sem við heimsóttum var San Gimagnio, Certaldo, Siena og Bolsena. Það er gaman að heimsækja þessa litlu ítölsku bæi og sjá daglegt líf fólks í sveitinni. Sumir bæir eru þó þekktir ferðamannabæir, eins og San Gimagnio og Siena, og þar eru ferðamennirnir. Alls staðar er þó nóg pláss á þessum árstíma og það gengur yfirleitt vel að fá bílastæði fyrir húsbílinn.




















Vegirnir í sveitum Toscana eru alls konar, yfirleitt mjög þröngir og yfirborðið óslétt. En umhverfið er fallegt, kirstuberjatrén eru að blómstra og allt orðið grænt. Frá Toscana héldum við í suðurátt, til Rómar, Þar eyddum við nokkrum dögum með vinum okkar og lentum í ýmsum ævintýrum. Meira um það í næsta bloggi.