Síðustu vikur hef ég verið á flakki um Austurríki, Þýskaland og Danmörk. Ég keyrði frá Austurríki norður Þýskaland til Danmerkur og hitti þar ættingja og vini. Hér eru nokkrar þær borgir í Þýskalandi sem ég skoðaði og gisti á tjaldstæðum eða húsbílastæðum.
Nürnberg
Nürnberg er ein af stærstu borgum í Bæjaralandi (Byern) í Suður-Þýskalandi. Borgin á sér langa sögu en varð fyrir mikilli eyðileggingu í seinni heimstyrjöldinni. Mörg kennileiti hafa verið endurbyggð í gamla miðbænum, m.a. Nürnberg kastali, kirkjur og borgarmúrinn.
Ég gisti á bílastæði við fallegan garð í suðurhluta borgarinnar, við vatnið Silbersee og hjólaði í gamla miðbæinn. Þetta stæði er fyrir húsbíla en engin þjónusta er á svæðinu. Góður hjólastígur er í miðbæinn og þangað er um 5 km eftir hjólastígnum.










Göttingen
Göttingen er háskólabær í miðju Þýskalandi, í Neðra-Saxlandi. Íbúar borgarinnar eru um 130 þúsund og 20 prósent þeirra eru stúdentar. Í bæjarjaðrinum eru falleg náttúruverndarsvæði með skógum og ánni Leine sem liggur í gegnum bæinn. Ég hjólaði um allan miðbæinn og hið fallega græna náttúruverndarsvæði umhverfis bæinn. Nálægt miðbænum er ágætis húsbílastæði (Reisemobilehaven) og þaðan er stutt að hjóla í bæinn.












Lübeck
Í norðurhluta Þýskalands er borgin Lübeck, stutt frá Eystrasalti, en skipaskurður liggur frá sjónum að borginni. Gamli miðbærinn er að stórum hluta á eyju á milli Trave árinnar og skipaskurðsins. Borgin er ein af fjórum helstu miðstöðvum Þýskalands með stóra höfn, þekkta háskóla, leikhús, sjúkrahús, tónlistar- og ráðstefnuhús. Lübeck er þekkt fyrir sjö turna sína og í gamla bænum eru þúsundir minja sem eru m.a. á heimsminjaskrá UNESCO. Ég gisti á ágætis húsbílastæði í norðurhluta bæjarins (Wohnmobile Treff Lübeck) og hjólaði í miðbæinn.










Bamberg
Bamberg, í Bæjaralandi, er ein fallegasta borg Þýskalands. Hún er þekkt fyrir að vera að mestu leyti ósnortinn og hefur verið opinberlega viðurkennd sem menningar- og náttúruarfleifð UNESCO, með fjölda byggingarlistar- og fornfræðileg minnismerki. Gamli miðbærinn einstaklega fallegur og dregur að sér marga ferðamenn á hverju ári. Ég mæli með að heimsækja borgina utan háannatíma og mæta snemma í miðbæinn, áður en borgin fyllist af ferðafólki.
Ég gisti á mjög góðu tjaldstæði í borgarjaðrinum því að húsbílastæðið í borginni var pakkfullt um miðjan dag. Tjaldstæðið heitir Camping Insel Bamberg og er um 4 km frá miðbænum.













Ég dvaldi nokkra daga í Danmörku og segi nánar frá því í næsta bloggi 🙂