Eftir jólin í Rauris héldum við mæðgur af stað á húsbílnum áleiðis til Sviss. Við gistum tvær nætur á leiðinni og heimsóttum skíðasvæði í Alpachtal, sem heitir Ski Juwel.

Alpachtal skíðasvæðið
Þetta skíðasvæði er hluti af Superskicard skíðasvæðunum og er staðsett í Tyrol héraðinu, stutt frá Wörgl. Við gistum á camping í Kramsach og keyrðum svo inn Alpach dalinn. Skíðasvæðið er ekki stórt, þó með 45 lyftum og 113 km af skíðbrekkkum. Síðustu daga hefur verið mjög hlýtt í Austurríki og ekkert snjóað síðan um miðjan desember. Það var því frekar lítill snjór í skíðabrekkunum og ekkert hægt að skíða utanbrautar. Í heildina er þetta ágætis skíðasvæði og mjög gaman að heimsækja svæði sem ég hef ekki heimsótt áður.











Áramót í St.Gallen í Sviss
Frá Alpach dalnum keyrðum við vestur Austurríki og til St.Gallen í Sviss, þar sem sonur minn og tengdadóttir búa. Á gamlársdag keyrðum við upp í fjöllin og tókum kláf upp á fjallið Säntis sem er í 2502 m hæð. Þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Alpana, Sviss, Austurriki og Þýskaland og sést jafnvel til Ítalíu. Við fórum líka í göngutúr um þjóðgarðinn við kláfinn, í einstaklega fallegu veðri, hálfgerðu sumarveðri enda hitastigið óvenju hátt miðað við árstíma.















Á gamlárskvöld fórum við út að borða á mjög sérstökum veitingastað sem bauð uppá þriggja rétta hlaðborð og dansandi engil með risa fjaðrahatt, á milli rétta. Mjög fyndið. Við horfðum svo á Svisslendingana skjóta upp gamla árinu, en það var töluvert sprengt þó að það sé í ekkert í líkingu við það sem gerist heima á Fróni.

Á nýársdag keyrðum við til Grindelwald þar sem við fórum á skíði. Á leiðinni stoppuðum við í höfuðborginni Bern og í litlum fallegum bæ sem heitir Thun. Keyrðum svo meðfram Thunersee vatninu í átt að Interlaken þar sem við gistum á camping. Á leiðinni þangað lentum við í umferðateppu vegna slyss og þurftum að keyra alla leið til baka hinum megin við vatnið þar sem einnig var umferðarslys. Það tók okkur því rúma þrjá klukkutíma að keyra þessa stutttu leið og komum við ekki á camping fyrr en í myrkri seint um kvöld. En við vorum heppin, við lentum ekki í slysi og þurftum bara að bíða í umferðarteppu 🙂












Skíðasvæðið Grindelwald
Daginn eftir lögðum við eldsnemma af stað til Grindelwald þar sem við skíðuðum allan daginn. Skíðasvæðið er í stórkostlegu landslagi með hið fræga fjall Eiger á bakgrunninum. Þangað er hægt að fara upp með lest og kláf og lestin gengur alla leið upp á topp á Jungfraujoch. Lestin er sú hæsta í Evrópu og var mikið mannvirki þegar teinarnir voru lagðir árið 1912.













Ég hef áður ferðast um þetta svæði að sumri til en aldrei farið á skíði þarna. Brekkurnar eru mjög brattar efst og þar sem ekki hefur snjóað þarna síðan fyrir jól þá var færið mjög erfitt, klaki og ís. Og neðar var aðeins framleiddur þjappaður snjór og sumstaðar varla snjór. En það var mjög gaman að koma á þetta svæði að vetri til og prófa skíðabrekkurnar.
Aftur til Austurríkis
Frá Grindelwald héldum við Íris aftur til Austurríkis, gistum tvær nætur á leiðinni og komum til Rauris í byrjun janúar. Það var óvenju hlýtt þessa daga og allur snjór farinn úr bænum. Skíðabrekkurnar voru ekki spennandi, allt of lítill snjór og við mæðgur ákváðum skella okkur því í vikuferð til Kanarí ✈️🏖 á meðan við biðum eftir meiri snjó í skíðabrekkurnar…



Meira um Kanarí í næsta bloggi.
