Eftir nokkurra daga hvíld í Rauris þá keyrði ég í austurátt með stefnuna á Ungverjaland. Á leiðinni þangað dólaði ég í tvær vikur í Austurríki og þar af fimm daga í höfuðborg landsins, Vín. Í Austurríki er nú að koma vetur eftir milt haust og hitastigið hefur lækkað mikið síðustu daga. Í bílnum er gasmiðstöð og svo er ég líka með rafmagnsofn sem ég get notað þegar ég er tengd við rafmagn á tjaldstæðum. Það er því alltaf hlýtt og notalegt inn í húsbíl þó að úti blási.

Litlu sveitavegirnir
Ég ákvað að þræða litlu sveitavegina í Suður-og Austur-Asturríki í stað þess að fara hrauðbrautina A10 sem liggur suður landið. Þar keyrði ég yfir nokkra fjallvegi, í gegnum nokkur skíðasvæði og lítil Austurrísk skíðaþorp. Meðal þeirra staða sem ég heimsótti var Radstadt, Obertauern, St.Michael im Lungau, Mühlbach, Kremsbrücke, Millstätt am See, Radentheim, Afritz og Steinsorf am Occiacher See.






















Á þessum árstíma er því miður flestir ferðamannastaðir í sveitunum lokaðir, s.s.kastalar, söfn, kaffihús og veitingastaðir. Í borgunum er þó mun meira opið og auðveldara að finna afþreyingu. Á ferð minni um sveitirnar eyddi ég því mestum tíma í keyrslu og gönguferðir.





Höfuðborgin Vín
Síðustu daga hef ég verið í hinni mögnuðu borg, Vín, þar sem margt er hægt að skoða. Þar er allt opið enda fjöldi ferðamanna í borginni. Búið er að setja upp jólaljós um alla borg og margir fallegir jólamarkaðir eru í borginni.














Í Vín hitti ég íslenska konu, Magneu, sem er búin að ferðast á húsbíl um alla Evrópu. Við mæltum okkur mót á Stellplast (húsbílastæði) í suðurhluta borgarinnar og eyddum svo tveimur dögum á göngu um borgina. Hún hélt svo áfram til Ungverjalands en ég ákavað að vera lengur í Vín og skoða borgina betur.














Í Vín búa tæpar tvær milljónir íbúa og þar er stjórnarráð landins. Borgin á sér langa sögu, allt frá tímum Rómarveldis og þar má finna margar sögufrægar byggingar. Hvar sem komið er má sjá glæsilegar byggingar og hallir skreyttar styttum af ýmsum stórmennum fortíðarinnar. Vín er að mínu mati ein fallegasta borg Evrópu og þangað á ég örugglega eftir að fara oftar. Á morgun yfirgef ég Vín og legg af stað til Ungverjalands.