Fleiri fjallvegir

Eftir að stórfjölskyldan var farin heim á leið þá var komið að því að nýta síðustu þrjár vikurnar í Ölpunum. Á þessum árstíma streyma ferðamenn allstaðar úr Evrópu í Alpana og vinsælir ferðamannastaðir þéttsetnir. Ég ákvað því að skoða nokkra af litlu fámennari dölunum í Austurríki og Ítalíu. Áður en þangað var haldið þá skoðaði ég stærsta íshellir í heimi sem er stutt frá Rauris.

Stærsti íshellir í heimi

Íshellirinn, Eisriesenwelt, er í rúmlega 1600 metra hæð, fyrir ofan bæinn Werfen í Austurríki og þarf að keyra upp brattan hlykkjóttan veg að bílastæðinu. Þaðan þarf að ganga í 20 mínútur, taka kláf og ganga svo aftur í 20 mínútur. Inní hellinum þarf svo að ganga 1400 tröppur, 700 upp og 700 niður. Og það var algjörlega þess virði að ganga þarna upp því að hellirinn er stórkostlegur. Gengið er inn í hópum með leiðsögumann og notast er við gömul olíuljós, en enginn önnur lýsing er í hellinum. Hellirinn er 40 km langur en ísinn er aðeins fremst í honum og þann hluta hafa ferðamenn aðgang að. 

Bremsulaus niður brekkuna

Eftir að hafa eytt góðum tíma í hellinum og á göngunni þá var kominn tími til að keyra niður snarbrattan veginn aftur. Og eftir alla fjallvegakeyrsluna undanfarið ár þá kom að því að bremsurnar gáfu sig. Það ýskraði í öllu og ég þorði ekki annað en að fara beint á næsta verkstæði. Þar var þriggja vikna bið en fyrir náð og miskunn þá redduðu verkstæðisgaurarnir mér og skiptu um klossa og diska að framan. Sögðu svo að bremsurnar að aftan ættu ekki langt eftir svo að ég ákvað þá að finna annað verkstæði sem gæti reddað því sem fyrst. Allstaðar var löng bið og mörg verkstæði lokuð vegna sumarleyfa. En ég fann eitt í Gasteinertal þar sem ég fékk tíma viku seinna. Þessa síðustu daga hef ég því lítið keyrt, heldur bara hjólað á fjallvegum í nágrenni Rauris.

Weissbach og Hintertal

Weissbach er lítið þorp stutt frá Lofer í Austurríki. Þaðan liggur Hintertal dalur sem endar við landamæri Þýskalands. Ég hjólaði inn þennan dal og upp að landamærum Þýskaland. Leiðin er inn í skógi til að byrja með en þegar ofar dregur þá minnkar skógurinn og útsýni eykst. Skemmtileg leið og væri gaman að fara niður í Berctesgaden þjóðgarðinn sem er Þýsklandsmegin. Geri það næst 😉

Stubach dalur

Einn daginn hjólaði ég frá Niedersill að Uttendorf og þaðan upp Stuberl dalinn. Skemmtileg leið sem endar við kláf sem fer að Weissse, en þar er hótel og skíðasvæði á veturna. Leiðin var rúmlega 50 km löng og 760m hækkun. Hjólað er eftir götunni en mjög lítil umferð er á þessari leið og útsýnið er fallegt. 

Síðustu daga hefur verið mjög heitt í Ölpunum, suma daga yfir 30 gráður og þá endar dagurinn stundum á úrhellis rigningu. En núna er húsbíllinn tilbúinn í fleiri fjallvegi, þar sem ég mun eyða þessum síðustu dögum á Evrópuflakkinu. Meira um það í næsta bloggi.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading