Síðustu dagarnir

Nú styttist í heimferð eftir þessa rúmlegu árslöngu húsbílaferð um Evrópu. Ferðin hefur verið eitt stórt ævintýri og ótal margir áhugaverðir staðir sem ég hef heimsótt. Eftir því sem ég skoða fleiri staði þá sé ég hversu marga staði ég á eftir.

Virgental í Austur-Tyrol

Síðustu dögunum eyddi ég í Suður- og Austur Tyrol, en Tyrol er hérað sem eitt sinn tilheyrði allt Austurríki en hluti af Tyrol tilheyrir núna Ítalíu. Ég keyrði frá Mittersill í Austurríki í gegnum Felbertauern göngin og til Matrei í Austur-Tyrol. Þar keyrði ég inn Virgental dalinn sem er mjög fallegur dalur og minnir dálíitið á Rauris dalinn, friðsæll og fáir ferðamenn. Dalurinn er hluti af Hohe Tauern þjóðgarðinum og þar eru margar göngu-og hjólaleiðir. Ég gisti innst í dalnum og hjólaði upp Dorferalmweg að Johanneshutte sem er í 2121m hæð.

Klettersteigen – Via Ferrata

Því næst keyrði ég að Lienz og skoðaði þar kastala og fór í klettaklifur, via ferrata. Leiðin sem ég klifraði var upp með fossi inn í þröngu gili, Galitzen klamm. Ég ætlaði aldrei að þora þessa leið, skoðaði hana neðan frá en hætti við því ég var ekki viss hvort ég kæmist alla leið upp. Það liti ekki vel út ef björgunarsveitin þyrfti að sækja miðaldra konu upp í miðjum klettaveg 😉 Ég gekk því eftir göngustígnum upp gilið og þegar ég kom aftur að útgönguhliðinu þá vissi ég að ég myndi alltaf sjá eftir því að hafa ekki klifrað þarna upp. Ég sneri því við, fór í klifurbeltið, setti á mig hjálminn sagði við sjálfan mig “þetta er ekkert mál… þetta er ekkert mál… þetta er ekkert mál… og muldraði þessa möntru alla leiðina upp vegginn, skíthrædd, með beljandi fossinn beint fyrir neðan. Leiðin er gráðuð C og er 210m með tveimur hengibrúm þar sem gengið er á mjóum vír yfir ána :-/ Ekki fyrir lofthrædda 😉 en ótrúlega skemmtilegt… allavega eftir á 🙂

Suður-Tyrol

Frá Austur-Tyrol keyrði ég yfir til Ítalíu, til Suður-Tyrol. Þar hitti ég Sigga bróður og fjölskyldu, en þau eru á húsbílaferðalagi í sumar. Ég ferðaðist með þeim í fjóra daga um fjöll og dali í S-Tyrol. Við skoðuðum m.a. jarðpýramítana í Perca, sem mynduðust við stórflóð fyrir hundruðum ára. Síðan hafa orðið fleiri flóð og pýramítarnir breytast því sífellt með veðrun og flóðum. Við skoðuðum líka kastalann í Bruneco og fórum á Reinold Messner safn þar, en Messner er einn frægasti fjallamaður Ítala.

Við keyrðum inn Ahrntal (Valle Aurina) dal sem liggur í norður frá Brunico og fórum þar m.a. í fjallgöngu og klettaklifur á Speikboden skíðasvæðinu. Þessi dalur endar stutt frá landamærum Austurríkis þar sem fjöll skilja að löndin og því ekki hægt að keyra lengra. Dalurinn var eitt sinn hluti af Austurríki og því eru flest örnefni bæði á þýsku og ítölsku. Fallegur dalur en eitt af því sem heillar mig á þessu ferðalagi er að keyra inn þrönga fáfarna dali, þar sem þarf að keyra sömu leiði til baka. Þar eru fáir ferðmenn, mikil kyrrð og einstök náttúrfegurð milli fjallanna.

Frá Ítalíu hélt ég aftur til Austurríkis þar sem ég eyði nú síðustu dögunum áður en ég flýg heim til Íslands eftir rúmlega árs ferðalag á húsbílnum.

Síðasti dagurinn á Ítalíu, í Afens dal, litlum þröngum dal rétt við Brennerskarðið.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading