Um vefinn

Vefur um húsbílaferðir í Evrópu

Vefurinn var upphaflega settur upp sem bloggvefur um ársferðalag mitt á húsbíl um Evrópu. Eftir að ferðalagi mínu lauk ákvað ég að breyta vefnum í fréttavef um húsbílaferðir erlendis. Á vefnum verða viðtöl við fólki sem ferðast á húsbíl um Evrópu og alls konar upplýsingar fyrir fólk á húsbílaferðalagi.

Hver er ég?

Ég heiti Eygló Sigurðardóttir og er miðaldra íslensk kona sem elska að ferðast og fara í fjallgöngur, hjóla, skíða og flakka um á húsbíl.

Ég starfa sem kennari og kennsluráðgjafi, hef lokið leiðsöguréttindum, er með meirapróf og stunda nú nám í vefmiðlun. Er ekkja og móðir þriggja barna, sem nú eru öll komin á sjálfræðisaldurinn og mínu hlutverki því lokið sem uppalanda.

Ég ferðaðist í mörg sumur um Evrópu á húsbíl með fjölskyldu minni og mig langaði aldrei heim til Íslands aftur í lok ferðar. Draumurinn hafði því lengi verið að eyða heilu ári í húsbílaferð um Evrópu.

Vorið 2022 lagði ég ein af stað í rúmlega árs húsbílaferðalag um Evrópu. Ég heimsótti um 30 lönd og keyrði rúmlega 50.000 km, allt frá Bergen í Noregi til Aþenu í Grikklandi. Húsbíllinn sem ég ferðaðist á þetta ár er af tegundinn Fiat Ducato með Knaus húsi. Á þessum vef er hægt að skoða ferðasöguna og fræðslumola um marga af þeim stöðum sem ég heimsótti. Það er von mín að ferðasaga mín verði einhverjum hvatning til að láta draum sinn rætast um húsbílaferðalag í Evrópu.


Hafðu samband

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ráðleggingar, ekki hika við að hafa samband. Einnig væri gaman að heyra í þér ef þú ert á húsbílaferðalagi í Evrópu og vilt deila reynslu þinni með öðrum.

Netfang: eyglo (hjá) husbill.com