Hjólað frá Garmisch til Garda

Í byrjun júní hjólaði ég með vinkonum mínum frá Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi, yfir Alpana og til Gardavatns á Ítalíu. Leiðin er um 330 km löng, að mestu eftir góðum hjólastígum, í stórkostlegu landslagi um Alpana. Ég notaði hjólasíðuna og appið Bikemap til að finna hjólastíga og pantaði alla gistingu fyrirfram í gegnum Booking. Við hjóluðum í sex daga og hver dagleið var um 50-65 km og því góður tími til að njóta og virða fyrir sér Alpana.

Garmisch-Partenkirchen

Ferðin hófst í Garmisch-Partenkirchen í Suður-Þýskalandi þar sem ég hjólaði um bæinn, skoðaði Olympíu svæðið og skoðaði stórkostleg gljúfur sem er við bæinn, Partnachklamm. Við gistum í húsbílnum á ágætis húsbílastæði við kláf, Alpencamp am Wank. Vinkonurnar komu síðan til Garmisch með lest frá Munchen.

Fyrsta daginn hjóluðum við frá Garmisch-Partenkirchen til Zirl nálægt Innsbruck, þaðan upp í Brennerskarðið á degi 2 og eftir það var nánast allt niður í móti að Gardavatni. Hjólaleiðin var að mestu eftir góðum hjólastíg eða fáförnum götum. Einstaka sinnum lentum við þó í að hjóla mjóan göngustíg eða eftir umferðargötu.

Þessi leið er mjög falleg þar sem hjólað er úr fjalllendi Alpanna í suðurátt niður Bolzano dalinn að hinu stórkostlega Gardavatni. Hjólað er í gegnum marga litla fallega bæi, bæði í Austurríki og Ítalíu. Stór hluti leiðarinnar liggur undir eða nálægt hraðbrautinni í gegnum Brennerskarðið og það er allt annað útsýni að fara hjólastíginn heldur en að keyra hraðbrautina.

Gardavatn

Eftir 330 km hjólaleið var komið að Gardavatni. Þar dvöldum við í tvær nætur í bænum Riva del Garda. Við nutum veðurblíðunnar, röltum um bæinn, fórum á ströndina, út að borða og ég skrapp í fjallgöngu. Við Gardavatn er marg hægt að gera, t.d. að fara í fjallgöngur, hjóla eða sigla um vatnið eða bara njóta lífsins og slaka á í fallegu umhverfi.

Við fórum svo til baka til Garmisch-Partenkirchen með leigubíl sem við vorum búnar að panta fyrirfram. Ég mæli með þessari hjólaleið fyrir þá sem vilja skemmtilega leið í stórkostlegu landslagi Alpanna.

Hjólaleiðin frá Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi til Gardavatns á Ítalíu. Bókstafirnir sýna gististaði.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading