Síðustu vikur hef ég verið að undirbúa námskeið fyrir þá sem eiga sér draum um að ferðast á húsbíl um Evrópu. Mig langaði að hjálpa þessu fólki með því að miðla minni reynslu af húsbílaflakki mínu um Evrópu.
Og nú er hafið fyrsta námskeiðið um húsbílaferðir í Evrópu. Þátttakan fór fram úr björtustu vonum og eru rúmlega hundrað þátttakendur skráðir á námskeiðið sem stendur yfir í fjórar vikur.
Námkeiðið er fyrir fólk á öllum aldri sem á sér draum um húsbílaferðalag um Evrópu.
Búið er að loka fyrir umsóknir á þetta námskeið en hægt er að skrá sig á biðlista fyrir næsta námskeið.
Einnig er ég búin að stofna Facebook hóp um húsbílaferðir í Evrópu þar sem fólk getur miðlað reynslu sinni af húsbílaferðum í Evrópu.
