Arlbergpass
Eftir hjólaferðina með Dóná þá flakkaði ég um nokkra fjallvegi í Austurríki, Ítalíu og Sviss. Ég byrjaði á að keyra frá Austurríki til Sviss og keyrði þá yfir Arlbergpass, en Arlberg göngin eru lokuð núna þangað til í haust vegna viðgerða. Arlberg fjallvegurinn er 14 km langur og liggur í 1793m hæð.
Í Sviss fór ég svo með húsbílinn á verkstæði til að láta skipta um hliðarrúðu í húsbílnum, eftir innbrotið í Róm. Á meðan skipt var um rúðu fórum við mæðgur í langan göngutúr meðfram Bodensee.








Í Sviss heimsóttum við m.a. náttúrugarð, Baumwipfelpfad Neckertal, þar sem hægt er að ganga eftir göngustíg sem er í sömu hæð og trén. Þar er hægt að fræðast um náttúruna, trén og fuglana, gera tilraunir, klifra í trjám og leika sér á stóru leiksvæði inní skóginum. Mjög skemmtilegt svæði, sérstaklega fyrir krakka.








St.Moritz og Julierpass
Frá Bodensee keyrðum við eftir fjallveginum Julierpass til St.Moritz í Sviss. St.Moritz er vinsæll ferðamannabær, bæði að sumri og vetri til. Bærinn er í 1800m hæð og stendur við samnefnt vatn. Þar hafa tvisvar sinnum verið haldnir vetrarólympíuleikar og er bærinn þekktur sem lúxus skíðastaður.










Berninapass
Um helgina ferðuðumst við með syni mínum og tengadóttir sem búa í Sviss. Við gistum á tjaldstæði í Morteratsch sem er á Berninapass fjallveginum. Þetta tjaldstæði er í rúmlega 1800m hæð í stórkostlegu umhverfi þar sem gist er á náttúrlegum svæðum, í skógarrjóðri, við vatn eða á árbakka. Frá tjaldstæðinu er merkt gönguleið upp að Morteratsch jöklinum sem hefur hopað mikið síðustu ár. Stutt frá tjaldstæðinu er Morteratsch lestarstöðin sem var byggð fyrir rúmum 100 árum og þá var hún við jökuljaðarinn. Núna er þriggja kílómetra gönguleið að jöklinum og lengist á hverju ári.












Stelviopass
Frá Sviss keyrðum við til ítalíu þar sem við fórum yfir hrikalegasta fjallveg sem ég hef keyrt, Stelviopass og hef ég þó farið allmarga fjallvegi í Evrópu, m.a.Trollstigen í Noregi sem blikknaði í samanburði við Stelviopass . Þessi fjallvegur er á Ítalíu og liggur frá Bormio yfir til Prato allo Stelvio. Fjallvegurinn er hæsti malbikaði fjallvegur í Austur-Ölpunum, næsthæstur í öllum Ölpunum og liggur í 2757m hæð við landamæri Sviss. Á leiðinni, sem er 75 km löng, eru 48 krappar beygjur þar sem víða er snarbratt niður og beygjurnar svo krappar að ég þurfti stundum að bakka til að ná beygjunni. Vegurinn er víða einbreiður og erfitt að mæta bíl. Þegar við fórum var nýbúið að opna leiðina en hún var lokuð um morguninn vegna hjólreiðakeppni. Flest farartæki á leiðinni voru því reiðhjól og mótorhjól.










Reschenpass
Næsti fjallvegur var Rechenpass sem liggur frá Ítalíu til Austurríkis en eftir að hafa keyrt Stelvio þá er varla hægt að tala um fjallveg þegar keyrt er yfir Reschenpass. Leiðin liggur í gegnum skarð í 1507m hæð og landamæri Ítalíu og Austurríki eru á heiðinni. Þaðan er keyrt niður Inn-dalinn í Austurríki, m.a.framhjá Serfaus og Fiss og til Innsbruck.



Grossglockner
Grossglockner Hochalpinstrasse er hæsti fjallvegur Austurríkis og liggur í 2504m hæð. Leiðin er vinsæl ferðamannaleið og liggur framhjá Grossglockner sem er hæsta fjall í Austurríki. Við keyrðum upp frá Fusch og komum niður hjá Heiligenblut. Keyrðum þaðan í Mölltal og tókum bílalest norður í Gasteinertal, frá Mallnitz til Böckstein. Keyrt er upp á lestina og farið með henni í gegnum göng. Lestin fer á klukkutíma fresti að það tekur aðeins 11 mínútur að fara í gegnum fjallið.







