Fræðsla

Hér eru upplýsingar um áhugaverðar akstursleiðir í Evrópu og ýmis fræðsla um húsbíla og húsbílaferðir.

Fræðsla og leiðarlýsingar

Vatnslosun húsbíla í Evrópu

Á losunarstöð fyrir húsbíla og hjólhýsi geturðu tæmt skólptanka, losað innihald klósettsins og fyllt á ferskvatn. Hvernig þetta fer nákvæmlega fram og hvað þarf að hafa í huga útskýrum við í þessari grein. Ferðalag með húsbíl er frábær upplifun, þar sem þú getur ferðast um heiminn alveg sjálfstætt. Hins vegar þarf smá skipulag þegar kemur…

Lesa meira

Öpp fyrir húsbílaferðir í Evrópu

Ferðalög um Evrópu á húsbíl hafa orðið einfaldari og öruggari með tilkomu fjölbreyttra snjallforrita sem hjálpa ferðalöngum að rata, finna gistingu og spara tíma og peninga. Hér eru nokkur af vinsælustu öppunum sem nýtast vel á ferðalagi um álfuna: Google Maps Þetta er eitt mest notaða leiðsagnarforrit í heiminum og nánast ómissandi fyrir ökumenn. Það…

Lesa meira

Námskeið hefst 9. mars

Hefur þig dreymt um húsbílaferð um Evrópu en veist ekki hvernig þú átt að undirbúa þig? Þann 9.mars hefst netnámskeið um húsbílaferðalög í Evrópu. Námskeiðið stendur yfir í 4 vikur þar sem þátttakendur fá fyrirlestra, fræðslu og fyrirspurnartíma. Farið verður í helstu atriði sem þarf að hafa í huga áður en lagt er af stað…

Lesa meira

Kílómetragjald á húsbíla erlendis

Eins og flestum er kunnugt tóku nú um áramótin gildi ný lög sem skylda alla bifreiðaeigendur til að borga kílómetragjald. Husbill.com kannaði stöðu þeirra sem eru með bílana sína erlendis og eru því ekki að keyra á íslenskum vegum í ákveðinn tíma. Endurgreiðsla kílómetragjalds Samkvæmt upplýsingum frá skattinum þá þarf ekki að borga kílómetragjald af…

Lesa meira

Námskeið um húsbílaferðir í Evrópu

Dreymir þig um að ferðast á húsbíl um Evrópu? Fyrsta skrefið er að skrá sig á námskeið um húsbílaferðir í Evrópu.Næsta námskeið hefst 3.mars og er skráning hafin á husbill.com/namskeid Þetta er eina námskeiðið á árinu og eina námskeið sinnar tegundar á Íslandi. Námskeiðið er haldið á netinu og því hægt að taka þátt hvar…

Lesa meira

Ertu að ofhlaða húsbílinn?

Það er freistandi að taka allar græjur með sér í húsbílaferðina þegar ferðast er með bílinn til Evrópu. Nauðsynlegt er þó að gæta hófs og vera með á hreinu leyfilega heildarþyngd húsbílsins. Í Evrópu gætir þú átt von á sekt ef bíllinn er of þungur. Í þessari grein frá Pincamp er fjallað nánar um sektargreiðslur…

Lesa meira

Húsbílaleigur í Evrópu

Þeir sem velja að leigja sér húsbíl í Evrópu geta valið úr mörgum bílaleigum. Flestar hefðbundnar bílaleigur eru ekki með húsbíla til leigu en hér að neðan eru dæmi um nokkrar bílaleigur sem bjóða uppá að leigja húsbíla af öllum stærðum og gerðum. Verð Verð á bílaleigubílum fer eftir því hvenær bíllinn er leigður og…

Lesa meira

Dreymir þig um húsbílaferð um Evrópu?

Hvernig væri að láta drauminn rætast og ferðast á húsbíl um Evrópu í sumar? Þann 4.mars hefst nýtt námskeið um húsbílaferðalög í Evrópu. Námskeiðið er eina námskeiðið á þessu ári og því tilvalið fyrir þá sem huga að húsbílaferð í sumar. Hægt er að skrá sig á skráningarsíðunni. Á námskeiðinu er farið í helstu atriði…

Lesa meira

Tjaldstæði í Evrópu

Nú þegar birta fer að degi þá eru margir eflaust farnir að huga að húsbílaferð næsta sumar. Á netinu má finna ýmsar vefsíður yfir tjaldstæði í Evrópu. Hér eru nokkur dæmi um tjaldstæða-vefsíður. Pincamp Vefsíða þýsku ADAC-bíleigenda samtakanna með yfir 14.500 tjaldstæðum í 42 löndum. Hægt er að leita eftir löndum eða velja staði á…

Lesa meira

Nokkur góð ráð fyrir vetrarferðir á húsbíl

Til að hægt sé að njóta ferðalagsins í frosti og snjó þá er nauðsynlegt að undirbúa sig vel. Þýska síðan Promobil hefur tekið saman nokkur góð ráð fyrir húsbílaeigendur sem eru á húsbílaferðalagi að vetri til. Í þessari grein er lausleg þýðing frá Promobil um vetrarferðir á húsbílum í Evrópu ásamt minni reynslu af húsbílaferðum…

Lesa meira

Gisting á bændabýli

Að leggja húsbílnum í bakgarðinn hjá bóndanum er skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnum tjaldstæðum í Evrópu. FEFI eru samtök bændagistinga víðs vegar um Evrópu þar sem rúmlega 6.100 bændur bjóða upp á ókeypis gistingu fyrir húsbílafólk í 10 löndum. Gestgjafarnir eru bændur, brugghús, ostaframleiðendur, vínframleiðendur, kráareigendur og garðyrkjubændur, svo eitthvað sé nefnt. Gestum gefst kostur á…

Lesa meira

Nýr fréttavefur

Nú þegar ársferðalagi mínu á húsbíl um Evrópu er lokið þá hef ákveðið að breyta vefnum í fréttavef um húsbílaferðir í Evrópu. Á vefnum verða viðtöl við fólk á ferðalagi á húsbíl, pistlar um tjaldstæði, áhugaverða staði og akstursleiðir. Þar verða fréttir um húsbíla og allt sem viðkemur húsbílaferðum í Evrópu. Ef þú ert á…

Lesa meira

Something went wrong. Please refresh the page and/or try again.