Nú er farið að vora í Ölpunum og við mæðgur erum lagðar af stað suður í sólina á Ítalíu. Í síðustu viku fórum við á tvö ný skíðasvæði, í Werfenweng og Wildkogel Arena.
Skíðasvæðið Werfenweng
Werfenweng er lítill bær fyrir ofan Bischofshofen í Salzburger héraði í Austurríki. Bærinn er í 900 m hæð og íbúar ekki nema rúmlega þúsund. Í bænum er áhugavert skíðasafn og til að komast á skíðasvæðið er keyrt í gegnum bæinn og inn dalinn. Á skíðasvæðinu eru níu lyftur og þegar við komum þangað var sól og blíða og fáir í fjallinu. Næg bílastæði eru við kláfinn og brekkurnar eru fínar þó svo að skíðasvæðið sé lítið. Þegar leið á daginn fjölgaði aðeins í fjallinu, mest skólahópar og fjölskydufólk. Á þessu svæði voru líka nokkrir paraglide-arar, sem hlupu fram af fjallinu í fallhlífum. Í heildina er þetta fínt skíðasvæði, lítið en kósí.









Wildkogel Arena skíðasvæðið
Hægt er að komast á Wildkogel skíðasvæðið úr tveimur bæjum, Bamberg og Neukirchen. Svæðið er í Salzburger héraði, stutt frá hinu fræga skíðasvæði Kitzbühel. Á þessu skíðsvæði er einnig lengsta upplýsta sleðabrekka í heimi, 14 km löng, en hún liggur frá fjallstoppi og niður í Bamberg bæinn. Á skíðasvæðinu eru 17 lyftur og 32 skíðaleiðir, svo að þetta er þokkalega stórt svæði. Ég var þarna síðast fyrir mörgum árum og síðan þá er búið að bæta við lyftum og skíðaleiðum. Þetta er mjög skemmtilegt skíðasvæði en það var margt fólk þarna og margir byrjendur í brekkunum.










Sveitagisting á Ítalíu
Úr Ölpunum héldum við mæðgur suður til Ítalíu. Við keyrðum eftir hraðbraut A10 suður Austurríki í átt að Udine á Ítalíu. Í fjöllunum fyrir austan borgina gistum við á vínbúgarði þar sem við fórum í vínsmökkun hjá bóndanum þar. Ég keypti árskort hjá ítölskum bænda gistisamtökum og get því gist eina og eina nótt frítt á bóndabæ. Þannig kynnist maður lókalnum á skemmtilegan hátt, spjallar við bændur og kaupir uppskeruna þeirra, hvort sem um er að ræða vín, ólífur eða annað sem bændurnir rækta.










