Síðustu viku hef ég verið að hjóla meðfram Dóná með vinkonum mínum frá Íslandi. Ég sótti þær á flugvöllinn í Munchen og við keyrðum til Passau í Þýskalandi, við Austurrísku landamærin, þar sem ég skildi húsbílinn eftir.

Hjólaleiðin meðfram Dóná er í heildina um 1200 km og skiptist gjarnan í þrennt. Fyrsti kaflinn liggur frá þýsku Ölpunum að landamærum Austurríkis, annar kaflinn í gegnum Austurríki að Vín og þriðji og síðasti hluti leiðarinnar frá Vín til Budapest í Ungverjalandi. Við hjóluðum miðjuhlutann sem er um 330 km og hjóluðum það á fimm dögum.













Leiðin liggur að mestu meðfram ánni, í gegnum akra, skóga og þorp. Þetta er mjög þægileg og auðveld leið, engar brekkur og nánast allt malbikaðir hjólastígar. Hægt er að hjóla beggja megin árinnar og víða hægt að fara yfir ána með ferju, á brú eða yfir stíflu.


















Síðustu kílómetrar leiðarinnar liggja í gegnum vínhéröð Neðra Austurríkis. Um 10 km frá Dóná fórum við í vínsmökkun hjá Moosberg fjölskyldunni í Gobelsburg kastalanum. Mjög skemmtileg upplifun að hitta aftur Peter sem fræddi okkur um víngerð fjölskyldunnar.




Hjólaleiðin endaði svo í Vínarborg þar sem við tókum lestina aftur til Passau. Þaðan keyrði ég til Austurríkis og eftir helgina liggur leiðin til Sviss.


