Námskeið

Dreymir þig um húsbílaferð um Evrópu?

Lærðu að undirbúa húsbílaferð um Evrópu og hvað þarf að gera áður en lagt er af stað.

Farið verður í helstu atriði sem þarf að hafa í huga áður en lagt er af stað í húsbílaferð til Evrópu. 
Hvenær er rétti tíminn til að leggja af stað og hvað viltu vera lengi? Hvaða möguleikar eru varðandi kaup eða leigu á húsbíl og hvernig húsbíl. Hvert á að fara og hvað er hægt að skoða? Hvernig eru tjaldstæðin og hvar má gista? Hvaða reglur gilda um akstur í Evrópulöndum? Hvað kostar svona ferð?

Viltu vera viss um að komast á næsta námskeið?

Hægt er að forskrá sig á næsta námskeið og hafa því forgang á námskeiðið sem verður í mars 2027. Þú færð þá póst í byrjun árs um nánara fyrirkomulag og skráningu. Forskráning er ekki bindandi og kostar ekkert. Forskráning er hér.

Nánar um námskeiðið:

Tímasetning: Námskeiðið er í 4 vikur. Fyrirlestrar á mánudögum og umræðufundir (Zoom) á fimmtudögum. Næsta námskeið er í mars 2027.
Skipulag: Fyrirlestrar koma inn á netið á mánudögum (hægt að skoða hvenær sem er dagsins og allan tímann meðan á námskeiði stendur). Umræður og fyrirspurnir á fimmtudögum (Zoom) kl.20. Í hverri viku fá þátttakendur valfrjáls verkefni sem aðstoðar þá við að undirbúa sína eigin draumaferð á húsbíl til Evrópu. Stofnaður verður Facebook hópur þar sem settar eru inn ýmsar upplýsingar og efni úr fyrirlestrunum. Í hópnum fara einnig fram umræður og fyrirspurnir.
Staðsetning: Á netinu (online)
Fyrir hvern: Alla sem hafa áhuga á húsbílaferðum um Evrópu og vilja undirbúa sig vel fyrir ferðina.
Verð: kr. 39.900

Á námskeiðinu er m.a. fjallað um:

  • Undirbúning húsbílaferðar
  • Ferðatími, ferðafélagar, að ferðast einn, að ferðast með börn
  • Vetrarferðir, langar ferðir, stuttar ferðir
  • Húsbílar, húsbílaleigur, að kaupa húsbíl, að ferðast á eigin húsbíl
  • Áfangastaðir, áhugaverðir staðir, þjóðgarðar, borgir, ferðamannastaðir
  • Tjaldstæði, stellplatz, freecamping
  • Vegakerfið, vegatollar, umferðarreglur, fjallvegir, hraðbrautir, LEZ (low emission zone)
  • Kostnaður
  • Vefsíður, öpp og bækur
  • Ýmis praktísk atriði
  • Spurningar og umræður

Spurningar um námskeiðið – Dreymir þig um húsbílaferð um Evrópu

Fyrir hvern er námskeiðið?

Fyrir alla sem eiga sér draum um að ferðast á húsbíl um Evrópu en hafa ekki enn lagt af stað. Námskeiðið er einnig fyrir þá sem hafa einhverja reynslu af húsbílaferðum en vilja læra meira.

Hvað tekur námskeiðið langan tíma?

Námskeiðið er í 4 vikur. Fyrirlestrar á netinu á mánudögum (hægt að horfa á þá hvaða tíma dags sem er) og spurningar/umræður á Zoom-fundi á fimmtudögum (kl.20)

Hvar er námskeiðið haldið?

Námskeiðið er haldið á netinu og hægt er að horfa á fyrirlestrana á meðan á námskeiði stendur.

Þarf ég að eiga húsbil til að taka þátt í námskeiðinu?

Nei, alls ekki. Þú getur farið í húsbílaferð um Evrópu án þess að eiga húsbíl. Hægt er að leigja húsbíl og þú færð allar upplýsingar um það á námskeiðinu.

Ég hef ferðast á eigin húsbíl um Ísland, er eitthvað öðruvísi að ferðast um Evrópu?

Það er mjög góð reynsla að hafa ferðast um Ísland, en í Evrópu eru ýmsar aðstæður og reglur öðruvísi. Þú lærir allt um það á námskeiðinu.

Hvaða reynslu hefur kennarinn af húsbílaferðum?

Eygló Sigurðardóttir, kennari á námskeiðinu, hefur ferðast á húsbíl um Evrópu í mörg ár og einnig hérlendis. Hún er nýkomin heim úr rúmlega ársferðalagi á húsbíl þar sem hún ferðaðist um þrjátíu lönd Evrópu.


Umsagnir þátttakenda

“Allan tímann skrá sig á námskeiðið. Fékk miklu meira út úr þessu námskeiði en ég átti von á. Allt sem ég þurfti að vita og ekki síst undirbúningurinn. Sennilega besta námskeið sem ég hef farið á. Hægt að spila aftur og aftur og spá og spekúlera. Stjórnandinn frábær og ég mæli með þessu námskeiði. Þessi kona er í algjörum sérflokki.”

Halldór

“Ég mæli með þessu námskeiði. Það eru mörg atriði sem koma fram, sem maður hafði ekki látið sér detta í hug, þrátt fyrir að hafa verið búin að skipulegga okkar húsbílaferðalag í tvö ár. Námskeiðið er vel sett upp og tekur á flestum ef ekki öllum liðum varðandi draumaferðina.”

Sirrý og Eiki

“Þettað var fyrst og fremst frábært pepp, gott að hafa kost á að spjalla ef það hentaði og pakkfullt af frábærum nothæfum upplýsingum. Ég mun mæla með verði annað svona námskeið. Takk kærlega fyrir gott námskeið og gleðilega páska.”

Jakobína

“Frábært. Mikill fróðleikur og praktisk atriði. Mæli mikið með áður en lagt er í að plana ferð”.

Dagrún

“Geggjað að fá allskonar tips og info frá einhverjum sem er búin að prófa þetta allt saman”

Hörður

“Mjög upplýsandi og gagnlegt námskeið sem við mælum með”

Helga

“Gott að taka svona námskeiðið áður en haldið er af stað, það tekur á svo mörgum þáttum og er mjög upplýsandi”.

Sólveig

“Þú færð svör við fleiri spurningum en þú veist að þú þurfir að spyrja, og þér eru sýndar leiðir til að finna frekari upplýsingar”

Pétur

Er þetta þinn draumur? – Fjárfestu í sjálfum þér!