Róm

Vinkonur í heimsókn

Frá Toscana keyrðum við suður til Rómar en ég var búin að mæla mér mót við tvær íslenskar vinkonum mínar á flugvellinum í Róm. Við sóttum þær á flugvöllinn og ferðuðumst með þeim í fimm daga. Gistum í huttu á Camping Villa Fabulous og keyrðum um nágranna sveitirnar. Mjög skemmtileg samvera í dásamlegu veðri og góðum félagsskap.

Rændar í Róm

Næst keyrðum við inní miðbæ Rómarborgar þar sem við heimsóttum góða vini okkar. Við lögðum bílnum á bílastæði í íbúðarhverfi og vorum á göngu um nágrennið þegar við fengum símtal um að það væri verið að brjótast inní bílinn okkar. Við hlupum að bílastæðinu en þá var búið að brjóta hliðarrúðu aftur í og gramsa í öllum skápum og skúffum og stela myndavélum sem voru í skápunum. Þetta var smá sjokk en lán í óláni að við vorum nýbúnar að fara með tölvur og fleira inn í íbúðina til vina okkar. Við ákváðum að láta þetta ekki eyðileggja Rómarferðina, fórum til lögreglunnar daginn eftir og gáfum skýrslu og skoðuðum svo Róm.

Þjófarnir brutu hliðarrúðu og komust þannig inn í bílinn

Sögufræga Róm

Í Róm er margt að skoða og við eyddum tveimur dögum á rölti um borgina að skoða sögufrægar byggingar, söfn, rústir, kirkjur og Colosseum. Þá heimsóttum við Vatikanið og röltum um stræti Róm í blíðskaparveðri. Róm er yfir 2700 ára gömul borg og má segja að hún sé lagskipt þar sem ný byggð myndast á nokkur hundruð ára fresti, ofan á eldri byggð. Fundist hafa fornminjar djúpt í jarðveginum og víða má sjá rústir og gamlar minjar. Íbúar borgarinnar eru um þrjár milljónir og fleiri ef talið er utan borgarmarkanna. Mikill fjöldi ferðamanna heimsækir borgina á hverju ári og leiðsögumenn segja að nú sér fjöldi ferðamanna orðinn jafnmikill og fyrir covid. Sem dæmi má nefna að daglega koma 30 þúsund gestir í Vatikan safnið.

Vatikanið í Róm

Það er varla hægt að fara til Róm nema að koma við í Vatikaninu. Við pöntuðum miða á netinu á safnið í Vatakaninu og fórum með leiðsögn í gegnum safnið. Þar var mjög margt fólk eins og alltaf en gaman að sjá safnið og virða fyrir sér þessi stórkostlegu listaverk sem þar eru. Skoðuðum líka Péturstorgið, en þar var verið að gera allt klárt fyrir páskamessuna um næstu helgi.

Lífíð í Róm

Við skoðuðum ekki bara sögufrægar byggingar í Róm heldur röltum um íbúðarhverfi og hliðargötur. Í Róm eru allir á lítlum bílum eða vespum, þar er margt fólk, mikil umferð og ferðamenn út um allt. Borgarlífið er fjölbreytt og gaman að sitja á kaffihúsi eða veitingastað og velta fyrir sér mannlífinu. Við upplifðum frábæra daga í Róm þrátt fyrir innbrotið. Veðrið lék við okkur og við mæðgur nutum lífsins með skemmtilegu fólki. Takk fyrir samveruna Arndís og Nenna. Takk fyrir frábærar móttökur og samverustundir Matti og Berglind.

Frá Róm fórum við með lest til Napoli og Amalfi. Meira um það í næsta bloggi.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading