Dreymir þig um að ferðast á húsbíl um Evrópu?
Fyrsta skrefið er að skrá sig á námskeið um húsbílaferðir í Evrópu.
Næsta námskeið hefst 3.mars og er skráning hafin á husbill.com/namskeid
Þetta er eina námskeiðið á árinu og eina námskeið sinnar tegundar á Íslandi. Námskeiðið er haldið á netinu og því hægt að taka þátt hvar í heiminum sem þú býrð.
Námskeiðið stendur yfir í 4 vikur. Á mánudögum eru fyrirlestrar sem hægt er að horfa á hvenær sem er og á fimmtudagskvöldum eru umræður og fyrirspurnir á Zoom.
Á námskeiðinu verður farið í helstu atriði sem þarf að hafa í huga áður en lagt er af stað í húsbílaferð til Evrópu. Til dæmis:
- Hvenær er rétti tíminn til að leggja af stað?
- Hvað tekur svona ferð langan tíma?
- Þarf ég að eiga húsbíl?
- Hvar er best að leigja húsbíl?
- Hvernig húsbíll hentar mér?
- Hvert er best að fara?
- Hvernig eru tjaldstæðin?
- Er hægt að gista annars staðar en á tjaldstæðum?
- Hvaða reglur gilda á hraðbrautum í Evrópu?
- Hvað er e-mission zone?
- Hvað kostar að ferðast á húsbíl um Evrópu?
