Síðustu daga hef ég verið í Sviss en þar er stórkostlegt landslag og gaman að keyra, ganga og hjóla. Veðrið hér hefur verið frekar svalt, en þó sól og blíða inn á milli. Margir fjallvegir eru enn lokaðir vegna snjóa en niðrí í dölunum er allt orðið grænt.

Maggiore vatnið
Fra Como vatninu keyrði ég að Maggiore vatninu sem er á landamærum Ítalíu og Sviss. Ég dvaldi nokkrar nætur þar og hjólaði og fór í göngutúra. Gekk meðal annars skemmtileg leið sem lá yfir hengibrú, Ponte Tibetano.









Bellinzona er Svissneskur bær í ítölskumælandi hluta landsins, í Ticino kantónunni. Bærinn er þekktur fyrir þrjá kastala sem eru í bænum og þeir eru á Heimsminjaskrá UNESCO. Hægt er að skoða alla kastalana og ganga um þá, mjög skemmtilegt. Bellinzona liggur í dal við suður rætur Alpanna og inn úr dalnum eru San Bernardino göngin.










Frá Bellinzona keyrði ég inn alveg stórkostlegan dal sem liggur í norður frá Locarno í Sviss. Dalurinn heitir Verzasca og endar í litlu þorpi sem heitir Sonogno. Ég gisti í dalnum og gekk lengst inn dalinn, inn fyrir þorpið en þar eru nokkrar gönguleiðir.












Ég keyrði í gegnum San Bernardino göngin og á leiðinni skoðaði ég stórkostlegt gljúfur, Viamala, þar sem áin Rín á upptök sín. Rín hefur í þúsundir ára runnið í gegnum gljúfrið sem myndaðist á ísöld.




Heiða og Pétur
Frá Sviss kemur hin fræga bíómyndi um Heiðu og Pétur, og er landslagið í þeirri mynd oft einkenni Alpanna. Myndin var að vísu tekin upp í stúdíói í Zurich en útisenurnar voru teknar í litlu þorpi í Maienfeld héraði í Sviss. Ég heimsótti þorpið og skoðaði þetta fallega umhverfi og húsið hennar Heidi.








Hjólað upp fjallveginn Flüelapass
Núna eru fjallvegir smám saman að opnast í Sviss og um síðustu helgi opnaði fjallvegurinn frá Susch til Davos, sem liggur í 2.383m hæð. Við Snorri, sonur minn sem býr í Sviss, ákváðum að hjóla þessa leið. Við skildum húsbílinn eftir í Klosters og tókum lestina til Scuol og hjóluðum þaðan til Davos. Mjög falleg leið með stórkostlega fjallasýn, 50 km og 1400m hækkun.










Hjólað í kringum Bodensee
Síðustu tvo daga hef ég svo hjólað í kringum Bodensee, 160 km leið á tveimur dögum. Ég skildi bílinn eftir á húsbílastæði í Kreuzlingen og hjólaði til Lindau sunnanmegin á laugardeginum og svo aftur til Konstanz norðanmegin á sunnudeginum. Á þessari leið er hjólað í gegnum þrjú lönd, Sviss, Austurríki og Þýskaland. Mjög skemmtileg leið sem ég mæli með.














