Páskarnir í Ölpunum

Þrátt fyrir að nú sé apríl hálfnaður þá gerði vorið hlé á komu sinni yfir páskana í Ölpunum. Síðustu daga hefur rignt töluvert og snjóað í fjöll. Frá blíðunni á Ítalíu fórum við mæðgur til Austurríkis. Ég þurfti að láta setja sumardekkin undir húsbílinn og að sækja hjólið mitt, fyrir næstu ferðatörn sem stendur fram á sumar.

Við eyddum páskunum í Austurríki og skelltum okkur á skíði en flest skíðasvæði loka á þriðjudeginum eftir páska. Við keyrðum svo um Austuríki og fórum m.a.í Swarovski safnið sem er í Vattens, rétt hjá Innsbruck. Það var alveg stórkostlegt safn þar sem farið er á milli herbergja með alls konar kristal skreytingum og munum, alveg mögnuð upplifum. Á útisvæðinu er frábært leiksvæði fyrir krakka og mörg fallegt listaverk. Ég mæli með þessu frábæra safni.

Við héldum okkur í Ölpunum þrátt fyrir kulda og vætu og keyrðum næst til Þýskalands. Þar keyrðum við marga sveitavegi og meðal annars hluta af hinni þekktu leið, Deutsche Alpenstrasse sem liggur um þýsku Alpana. Þessi leið liggur meðal annars í gegnum Garmish-Partenkirchen og Füssen og endar við Bodensee.

Frá Þýsku Ölpunum keyrðum við til Sviss, norðan megin við Bodensee og til Zurich. Þar tók Íris flug til Portúgals en hún er að fara í tveggja mánaða interrail bakpokaferðalag og hefst ferðin á surfing námskeiði í Portúgal. Spennandi ferðalag framundan hjá henni.

Næstu daga ætla ég að ferðast um Sviss á meðan ég bíð eftir nýrri hliðarrúðu, eftir innbrotið í Róm, en rúðan er væntanleg í næstu viku. Eftir það held ég suður á bóginn.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading