Alpen – Adria hjólaleiðin

Þriggja mánaða húsbílaferð framundan

Í lok maí lagði ég af stað með Norrænu í þriggja mánaða húsbílaferðalag um Evrópu á sendibílnum sem ég hef verið að innrétta sem húsbíl í vetur. Ferðin hófst á nokkra daga ferðalagi um Ísland og síðan lá leiðin til Færeyja og þaðan til Danmerkur.

Keyrt var nokkuð greitt suður Evrópu með viðkomu hjá vinum og ættingjum í Danmörku og í Hollandi og endað í Rauris í Austurríki. Þar hófst vikulöng hjólaferð til Ítalíu með nokkrum vinkonum.

Hjólað úr Austurrísku Ölpunum að Adria hafinu á Ítalíu

Hjólaleiðin sem við hjóluðum er 360 km löng, hófst í Rauris í Austurríki og endaði í Grado á Ítalíu. Í Gasteinartal komu við inn á hina hefðbundnu Alpen-Adria hjólaleið en flestir sem hjóla, sem er frá Salzburg til Grado.

Alpen-Adria hjólaleiðin er ein fallegasta hjólaleið í Evrópu og langmestur hluti leiðarinnar er á hjólastígum. Við ákváðum að taka því rólega, njóta en ekki þjóta, og hjóluðum um 50-70 km á dag. Í miðri ferð, við landamæri Austurríkis, Ítalíu og Slóveníu, gistum við í tvær nætur og einnig í lok ferðar, í strandbænum Grado. Við vorum búnar að panta alla gistingu fyrirfram og gistum samtals í átta nætur. Við lentum í alls konar veðri, rigningu, sól og allt þar á milli. Hitastigið var um 18-25 gráður, besta hjólaveður sem hægt er að hugsa sér.

Ferðin gekk mjög vel þrátt fyrir að stundum hafi þurft að fara út af hjólaleiðinni vegna flóða við ánna Drau. Frá landamærum Ítalíu er hjólaleiðin eftir gamalli lestarleið þar sem búið er að fjarlægja lestarteinana og leggja malbikaðan hjólastíg. Leiðin liggur í fjallshlíðum með stórkostlegu útsýni, í gegnum göng og yfir brýr.

Ég mæli 100% með þessari hjólaleið fyrir þá sem hafa áhuga á að hjóla um Alpana. Leiðin liggur að mestu niður í móti, örfáar brekkur upp á við, sem eru auðveldar á rafmagnshjóli.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading