Hjólað frá Garmisch til Garda

Í byrjun júní hjólaði ég með vinkonum mínum frá Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi, yfir Alpana og til Gardavatns á Ítalíu. Leiðin er um 330 km löng, að mestu eftir góðum hjólastígum, í stórkostlegu landslagi um Alpana. Ég notaði hjólasíðuna og appið Bikemap til að finna hjólastíga og pantaði alla gistingu fyrirfram í gegnum Booking. Við hjóluðum…

Meira

Fjallvegir í Ítölsku Ölpunum

Frá Slóveníu hélt ég eftir fjallvegi SS54 yfir til Ítalíu, sem liggur á mörkum þriggja landa, Ítalíu, Austurríki og Slóveníu og kom niður í bæinn Tarvisio. En hjólaleiðin frá Ölpunum að Adríahafi liggur einmitt í gegnum Tarvisio og ég því nýbúin að hjóla þar í gegn. Fjallaþorpið Monte Lussari Rétt við Ítalska smábæinn Tarvisio er…

Meira

Alpen – Adria hjólaleiðin

Þriggja mánaða húsbílaferð framundan Í lok maí lagði ég af stað með Norrænu í þriggja mánaða húsbílaferðalag um Evrópu á sendibílnum sem ég hef verið að innrétta sem húsbíl í vetur. Ferðin hófst á nokkra daga ferðalagi um Ísland og síðan lá leiðin til Færeyja og þaðan til Danmerkur. Keyrt var nokkuð greitt suður Evrópu…

Meira

Síðustu dagarnir

Nú styttist í heimferð eftir þessa rúmlegu árslöngu húsbílaferð um Evrópu. Ferðin hefur verið eitt stórt ævintýri og ótal margir áhugaverðir staðir sem ég hef heimsótt. Eftir því sem ég skoða fleiri staði þá sé ég hversu marga staði ég á eftir. Virgental í Austur-Tyrol Síðustu dögunum eyddi ég í Suður- og Austur Tyrol, en…

Meira

Fjallvegir í Ölpunum

Arlbergpass Eftir hjólaferðina með Dóná þá flakkaði ég um nokkra fjallvegi í Austurríki, Ítalíu og Sviss. Ég byrjaði á að keyra frá Austurríki til Sviss og keyrði þá yfir Arlbergpass, en Arlberg göngin eru lokuð núna þangað til í haust vegna viðgerða. Arlberg fjallvegurinn er 14 km langur og liggur í 1793m hæð. Í Sviss…

Meira

Sviss og N-Ítalía

Vötnin í Sviss Í síðustu viku keyrði ég um fjallahéröð Sviss í austurhluta landsins. Veðrið var frekar svalt svo ég ákvað að halda mig á láglendi við vötnin Zugersee, Wierwaldstättsee, Ägerisee og Unersee. Þessi vötn eru inn á milli hárra fjalla, í mjög fallegu umhverfi, með litlum Svissneskum þorpum og sveitabæjum. En þar sem verðurspáin…

Meira

Napoli og Amalfi

Lestarferð frá Róm Þar sem húsbíllinn er með brotna hliðarrúðu þá ákváðum við að geyma hann í öruggri geymslu í Róm og taka lest suður til Napoli og þaðan að Amalfi ströndinni. Ég pantaði gistingu á hóteli í Sorrento, sem er lítill fallegur bær stutt frá Amalfi. Lestin frá Róm til Napoli tók tvær klukkustundir…

Meira

Róm

Vinkonur í heimsókn Frá Toscana keyrðum við suður til Rómar en ég var búin að mæla mér mót við tvær íslenskar vinkonum mínar á flugvellinum í Róm. Við sóttum þær á flugvöllinn og ferðuðumst með þeim í fimm daga. Gistum í huttu á Camping Villa Fabulous og keyrðum um nágranna sveitirnar. Mjög skemmtileg samvera í…

Meira

Sveitavegir í Toscana

Síðustu viku þræddum við hlykkjótta sveitavegi í Toscana héraði á Ítalíu. Við gistum á ólífubúgörðum og litlum tjaldstæðum í hlíðum Toscana. Við fórum í vínsmökkun, gönguferðir um sveitirnar og sátum á kaffihúsum í litlu ítölsku þorpunum…. Meðal þeirra bæja sem við heimsóttum var San Gimagnio, Certaldo, Siena og Bolsena. Það er gaman að heimsækja þessa…

Meira