Hjólað frá Garmisch til Garda

Í byrjun júní hjólaði ég með vinkonum mínum frá Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi, yfir Alpana og til Gardavatns á Ítalíu. Leiðin er um 330 km löng, að mestu eftir góðum hjólastígum, í stórkostlegu landslagi um Alpana. Ég notaði hjólasíðuna og appið Bikemap til að finna hjólastíga og pantaði alla gistingu fyrirfram í gegnum Booking. Við hjóluðum…

Meira

Brunað gegnum Þýskaland

Síðustu vikur hef ég verið á flakki um Austurríki, Þýskaland og Danmörk. Ég keyrði frá Austurríki norður Þýskaland til Danmerkur og hitti þar ættingja og vini. Hér eru nokkrar þær borgir í Þýskalandi sem ég skoðaði og gisti á tjaldstæðum eða húsbílastæðum. Nürnberg Nürnberg er ein af stærstu borgum í Bæjaralandi (Byern) í Suður-Þýskalandi. Borgin…

Meira

Fjallvegir í Ítölsku Ölpunum

Frá Slóveníu hélt ég eftir fjallvegi SS54 yfir til Ítalíu, sem liggur á mörkum þriggja landa, Ítalíu, Austurríki og Slóveníu og kom niður í bæinn Tarvisio. En hjólaleiðin frá Ölpunum að Adríahafi liggur einmitt í gegnum Tarvisio og ég því nýbúin að hjóla þar í gegn. Fjallaþorpið Monte Lussari Rétt við Ítalska smábæinn Tarvisio er…

Meira

Triglav þjóðgarðurinn í Slóveníu

Frá Rauris í Austurríki hélt ég áfram leið minni um Alpana áleiðis til Slóveníu. Þar ætlaði ég að skoða þjóðgarð Slóveníu sem heitir Triglav og er stutt frá hinu fræga Bled vatni. Hjólað í kringum Wörthersee Á leiðinni frá Austurríki til Slóveníu gisti ég m.a. á tjaldstæði við Wörthersee í Austurríki. Vatnið er í fallegu…

Meira

Alpen – Adria hjólaleiðin

Þriggja mánaða húsbílaferð framundan Í lok maí lagði ég af stað með Norrænu í þriggja mánaða húsbílaferðalag um Evrópu á sendibílnum sem ég hef verið að innrétta sem húsbíl í vetur. Ferðin hófst á nokkra daga ferðalagi um Ísland og síðan lá leiðin til Færeyja og þaðan til Danmerkur. Keyrt var nokkuð greitt suður Evrópu…

Meira

Síðustu dagarnir

Nú styttist í heimferð eftir þessa rúmlegu árslöngu húsbílaferð um Evrópu. Ferðin hefur verið eitt stórt ævintýri og ótal margir áhugaverðir staðir sem ég hef heimsótt. Eftir því sem ég skoða fleiri staði þá sé ég hversu marga staði ég á eftir. Virgental í Austur-Tyrol Síðustu dögunum eyddi ég í Suður- og Austur Tyrol, en…

Meira

Fleiri fjallvegir

Eftir að stórfjölskyldan var farin heim á leið þá var komið að því að nýta síðustu þrjár vikurnar í Ölpunum. Á þessum árstíma streyma ferðamenn allstaðar úr Evrópu í Alpana og vinsælir ferðamannastaðir þéttsetnir. Ég ákvað því að skoða nokkra af litlu fámennari dölunum í Austurríki og Ítalíu. Áður en þangað var haldið þá skoðaði…

Meira

Fjallvegir í Ölpunum

Arlbergpass Eftir hjólaferðina með Dóná þá flakkaði ég um nokkra fjallvegi í Austurríki, Ítalíu og Sviss. Ég byrjaði á að keyra frá Austurríki til Sviss og keyrði þá yfir Arlbergpass, en Arlberg göngin eru lokuð núna þangað til í haust vegna viðgerða. Arlberg fjallvegurinn er 14 km langur og liggur í 1793m hæð. Í Sviss…

Meira