Sigurður Ólafur Sigurðsson og kona hans, Erla Björk Jónsdóttir leigðu húsbíl í Sviss í sumar og ferðuðust um Alpana í tvo mánuði. Með þeim var 10 ára dóttir þeirra, Emma Líf og eldri dóttirin, Lukka Mörk, var með þeim hluta af tímanum.

Þau flugu til Genf og tóku húsbíl á leigu sem þau voru búin að panta með góðum fyrirvara, en Siggi, eins og hann er jafnan kallaður, mælir með að panta bíl með margra mánaða fyrirvara því að verðið hækkar eftir því sem nær dregur ferðadegi.
Hafa ferðast mikið um hálendi Íslands
Fjölskyldan hefur ferðast mikið um hálendi Íslands á sérsmíðuðum húsbíl sem Siggi innréttaði sjálfur. Sá bíll er upphækkaður með léttri yfirbyggingu og þau hugleiddu að fara með hann með Norrænu en ákváðu frekar að prófa að leigja húsbíl í Evrópu sem hentaði betur á vegum á meginlandinu. Það var líka hagkvæmara að leigja húsbílinn þegar allt var reiknað með, ferðin með Norrænu og tíminn sem tók að koma sér frá Íslandi suður í Alpana.

Siggi segir að munurinn á að ferðast á húsbíl um hálendi Íslands og í Ölpunum sé að á Íslandi þekki þau vel allar aðstæður og áfangastaði, sérstaklega á hálendinu. Í Ölpunum þarf alltaf að gista á tjaldstæðum eða húsbílastæðum og þar er mun meira fólk heldur en á hálendi Íslands.
Þau hófu undirbúning ári áður og tóku stefnuna á Alpalöndin, Sviss, Austurríki og Ítalíu, en þau vilja helst vera á fjöllum. Það lá því vel við að halda sér í fjallendi Alpanna en þau keyrðu líka til Slóveníu og Króatíu.
Tóku hjólin með
Þau völdu að fljúga til Genf í Sviss og leigja bílinn þar því að það var ódýrast miðað við að planið var að ferðast um Alpana. Þau tóku hjólin með en komust svo að því að það var ekki hægt að leigja hjólagrind með bílnum og tóku því á það ráð að taka með sér hjólaboga, festingar og stiga að heiman. Skelltu svo hjólunum ofan á bílinn þegar út var komið því ekki vildu þau leigja samanbrjótanleg hjól á bílaleigunni og hjóla á þeim um Alpana. Bíllinn var því nokkuð hár sem gat einstaka sinnum verið farartálmi þegar keyrt var undir brýr á þröngum vegum á Ítalíu.

Hvernig er að ferðast með barn í húsbíl?
Þeim fannst það nú ekki mikið mál enda vön að ferðast með stelpurnar sínar um allt Ísland og hér eru nokkur ráð frá þeim um húsbílaferðir með börn:
- Gera eitthvað á hverjum degi fyrir börnin
- Að börnin séu með í ráðum þegar ferðalagið er skipulagt
- Allir fá að velja sér dót eða annað til að taka með sér
- Hafa alltaf nóg að borða og drekka í bílnum og bakpokanum
- Forðast borgir og búðir, betra að halda sér í fjöllunum
- Hafa ipadinn fullhlaðinn og nóg af Netflix myndum 🙂
En hvað viltu segja að lokum við fjölskyldufólk sem langar að prófa húsbílaferð um Evrópu?
Þetta allt spurning um hugarfar og forgangsröðun. Ef þú vilt ferðast á húsbíl í tvo mánuði eða lengur en hefur bara 6 vikna sumarfrí, taktu þá bara launalaust leyfi í nokkrar vikur. Það er alltaf hægt að vera með endalausar afsakanir um tíma og peninga. Ef þetta er það sem þú hefur áhuga á að gera, gerðu það þá!




