Hjólað frá Garmisch til Garda

Í byrjun júní hjólaði ég með vinkonum mínum frá Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi, yfir Alpana og til Gardavatns á Ítalíu. Leiðin er um 330 km löng, að mestu eftir góðum hjólastígum, í stórkostlegu landslagi um Alpana. Ég notaði hjólasíðuna og appið Bikemap til að finna hjólastíga og pantaði alla gistingu fyrirfram í gegnum Booking. Við hjóluðum…

Meira

Fjallvegir í Ítölsku Ölpunum

Frá Slóveníu hélt ég eftir fjallvegi SS54 yfir til Ítalíu, sem liggur á mörkum þriggja landa, Ítalíu, Austurríki og Slóveníu og kom niður í bæinn Tarvisio. En hjólaleiðin frá Ölpunum að Adríahafi liggur einmitt í gegnum Tarvisio og ég því nýbúin að hjóla þar í gegn. Fjallaþorpið Monte Lussari Rétt við Ítalska smábæinn Tarvisio er…

Meira

Triglav þjóðgarðurinn í Slóveníu

Frá Rauris í Austurríki hélt ég áfram leið minni um Alpana áleiðis til Slóveníu. Þar ætlaði ég að skoða þjóðgarð Slóveníu sem heitir Triglav og er stutt frá hinu fræga Bled vatni. Hjólað í kringum Wörthersee Á leiðinni frá Austurríki til Slóveníu gisti ég m.a. á tjaldstæði við Wörthersee í Austurríki. Vatnið er í fallegu…

Meira

Síðustu dagarnir

Nú styttist í heimferð eftir þessa rúmlegu árslöngu húsbílaferð um Evrópu. Ferðin hefur verið eitt stórt ævintýri og ótal margir áhugaverðir staðir sem ég hef heimsótt. Eftir því sem ég skoða fleiri staði þá sé ég hversu marga staði ég á eftir. Virgental í Austur-Tyrol Síðustu dögunum eyddi ég í Suður- og Austur Tyrol, en…

Meira

Fjallvegir í Ölpunum

Arlbergpass Eftir hjólaferðina með Dóná þá flakkaði ég um nokkra fjallvegi í Austurríki, Ítalíu og Sviss. Ég byrjaði á að keyra frá Austurríki til Sviss og keyrði þá yfir Arlbergpass, en Arlberg göngin eru lokuð núna þangað til í haust vegna viðgerða. Arlberg fjallvegurinn er 14 km langur og liggur í 1793m hæð. Í Sviss…

Meira

Aftur í Alpana

Að keyra heilu dagana eftir hraðbrautum í Þýskalandi býður ekki upp á mikla náttúrufegurð né fjölbreytni í landslagi. Umferðarteppur (Stau), vegaframkvæmdir, trukkar, akrar og skógar. Það gleður mig því alltaf jafn mikið þegar ég nálgast Alpana og fer að keyra aftur sveitavegina. Síðustu daga var ég þó ekki aðeins á hraðbrautum, ég keyrði t.d. meðfram…

Meira

Maraþon keyrsla

Síðustu daga hef ég tekið nokkra langa keyrsludaga, samtals um 3600 km. Frá ferjunni í Kiel í Þýskalandi til Danmerkur, Noregs og svo suður Þýskalands til Austurríkis. Ferðafélagi Ég “skaust” til Noregs til að sækja ferðafélaga sem verður með mér næsta mánuðinn. Dóttir mín, Íris Arna, ákvað að hætta í skólanum í Noregi, henni fannst…

Meira

Noregur – brattar brekkur, brýr, beygjur og bátar

Fjölskylduhittingur Siðustu daga hef ég verið á flakki í Noregi. Ég dvaldi í nokkra daga með stórfjölskyldunni í Solberg sem er á eyju rétt hjá Molde í Noregii. Við fórum m.a.í fjallgöngur, bíltúr, borðuðum góðan mat og nutum lífsins. Eftir fjölskylduhittinginn héldum við Íris suður vesturströnd Noregs. Við keyrðum norska krókótta fjallvegi, upp og niður,…

Meira