Hjólað frá Garmisch til Garda

Í byrjun júní hjólaði ég með vinkonum mínum frá Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi, yfir Alpana og til Gardavatns á Ítalíu. Leiðin er um 330 km löng, að mestu eftir góðum hjólastígum, í stórkostlegu landslagi um Alpana. Ég notaði hjólasíðuna og appið Bikemap til að finna hjólastíga og pantaði alla gistingu fyrirfram í gegnum Booking. Við hjóluðum…

Meira

Kom nokkrum árum yngri heim úr húsbílaferð

Nanna Bára Maríasdóttir og Hlíðar Sæmundsson leigðu sér húsbíl í Þýskalandi síðasta sumar og ferðuðust um Evrópu í mánuð. Þau segja mikilvægast að njóta hvers dags í stað þess að keyra marga kílómetra. Husbill.com ræddi við Nönnu Báru um ferðina. Leigðu húsbíl í Frankfurt Nanna Bára og Hlíðar skoðuðu nokkrar leigur og vildu fá góðan…

Meira

Triglav þjóðgarðurinn í Slóveníu

Frá Rauris í Austurríki hélt ég áfram leið minni um Alpana áleiðis til Slóveníu. Þar ætlaði ég að skoða þjóðgarð Slóveníu sem heitir Triglav og er stutt frá hinu fræga Bled vatni. Hjólað í kringum Wörthersee Á leiðinni frá Austurríki til Slóveníu gisti ég m.a. á tjaldstæði við Wörthersee í Austurríki. Vatnið er í fallegu…

Meira

Alpen – Adria hjólaleiðin

Þriggja mánaða húsbílaferð framundan Í lok maí lagði ég af stað með Norrænu í þriggja mánaða húsbílaferðalag um Evrópu á sendibílnum sem ég hef verið að innrétta sem húsbíl í vetur. Ferðin hófst á nokkra daga ferðalagi um Ísland og síðan lá leiðin til Færeyja og þaðan til Danmerkur. Keyrt var nokkuð greitt suður Evrópu…

Meira

Síðustu dagarnir

Nú styttist í heimferð eftir þessa rúmlegu árslöngu húsbílaferð um Evrópu. Ferðin hefur verið eitt stórt ævintýri og ótal margir áhugaverðir staðir sem ég hef heimsótt. Eftir því sem ég skoða fleiri staði þá sé ég hversu marga staði ég á eftir. Virgental í Austur-Tyrol Síðustu dögunum eyddi ég í Suður- og Austur Tyrol, en…

Meira

Fleiri fjallvegir

Eftir að stórfjölskyldan var farin heim á leið þá var komið að því að nýta síðustu þrjár vikurnar í Ölpunum. Á þessum árstíma streyma ferðamenn allstaðar úr Evrópu í Alpana og vinsælir ferðamannastaðir þéttsetnir. Ég ákvað því að skoða nokkra af litlu fámennari dölunum í Austurríki og Ítalíu. Áður en þangað var haldið þá skoðaði…

Meira

Stórfjölskyldan í Austurríki

Síðustu daga hefur verið mikið fjör hjá okkur í Rauris í Austurríki þar sem stórfjölskyldan hittist og áttum við dásamlega daga saman. Ættingjarnir komu víða að, frá Íslandi, Sviss, Danmörku, Noregi og Slóvakíu. Sumir voru á húsbílaferðalagi í Evrópu og gistu í bílunum sínum en aðrir gistu í húsi í Rauris. Við fórum í gönguferðir,…

Meira

Fjallvegir í Ölpunum

Arlbergpass Eftir hjólaferðina með Dóná þá flakkaði ég um nokkra fjallvegi í Austurríki, Ítalíu og Sviss. Ég byrjaði á að keyra frá Austurríki til Sviss og keyrði þá yfir Arlbergpass, en Arlberg göngin eru lokuð núna þangað til í haust vegna viðgerða. Arlberg fjallvegurinn er 14 km langur og liggur í 1793m hæð. Í Sviss…

Meira

Aftur í Alpana

Að keyra heilu dagana eftir hraðbrautum í Þýskalandi býður ekki upp á mikla náttúrufegurð né fjölbreytni í landslagi. Umferðarteppur (Stau), vegaframkvæmdir, trukkar, akrar og skógar. Það gleður mig því alltaf jafn mikið þegar ég nálgast Alpana og fer að keyra aftur sveitavegina. Síðustu daga var ég þó ekki aðeins á hraðbrautum, ég keyrði t.d. meðfram…

Meira