Fjölskylduhittingur
Siðustu daga hef ég verið á flakki í Noregi. Ég dvaldi í nokkra daga með stórfjölskyldunni í Solberg sem er á eyju rétt hjá Molde í Noregii. Við fórum m.a.í fjallgöngur, bíltúr, borðuðum góðan mat og nutum lífsins. Eftir fjölskylduhittinginn héldum við Íris suður vesturströnd Noregs.




Hellulagður göngustígur









Við keyrðum norska krókótta fjallvegi, upp og niður, hægt og rólega, en það er ökuhraðinn í Noregi 🙂
Við keyrðum m.a. þann fræga fjallveg Trollstigen. Það var upplifun, örmjór og brattur fjallvegur þar sem varla er hægt að mæta bílum, hvað þá rútum. En við vorum heppin að það var lítil umferð á leiðinni og ferðin gekk því vel.



















Síðan keyrðum við í Geirangursfjörð en þangað er annar brattur og hlykkjóttur vegur og veðrið þann daginn þar frekar blautt og á köflum svarta þoka. Ferðin gekk því hægt og útsýnið var lítið uppá háheiðinni en lagaðist þegar neðar dró og fegurð Geirangursfjarðar blasti við. Mjög fallegur fjörður og mikið af ferðafólki.
Íris í Følkehogskule í Bømlo
Við keyrðum svo upp á heiðar og niður í dali, inn langa firði, inní göng, yfir brýr og tókum nokkrar ferjur. Veðrið var alls konar, rigning, þoka, sól, hlýtt og kalt og allt þar á milli. Veðrið og vegirnir hér í Noregi er mjög fjölbreytt og landslagið er einstakt.

Eftir þrjá daga á flakki var komið að því að fara með Írisi í skólann í Bömlo. Þar ætlar hún að stunda nám í Folkehogskule í vetur. Það verður mikil áskorum fyrir hana, að flytja að heiman og búa í afskekktu þorpi við sjóinn á vesturstönd Noregs. Hún var mjög ánægt með herbergið sitt á heimavistinni og leist vel á skólann. Eftir skólasetningu hjá Írisi hélt ég áfram ferðinninni, á austurátt.
Heimsókn í Drammen
Ég keyrði yfir hálendi Noregs, skoðaði nokkra fossa, fjöll, skíðasvæði, huttur og litil þorp. Einnig stærstu stafakirkju Noregs sem er í Heddal.
Endaði svo í Drammen þar sem ég heimsótti góða vini, Katrínu og Örn, sem búa þar og reka Arctik Trucks jeppabreytingaverkstæði. Við fórum í siglingu á bátnum þeirra og grilluðum úti á hafi í dásamlegu veðri. Ég gisti hjá þeim og áður en ég fór frá þeim þá redduðu þau olíuskiptum á húsbílnum. Þar sem ég hef minna en ekkert vit á bílum þá kom sér vel að vera stödd á einu flottasta verkstæði sem ég hef komið á, þegar olíuljósið byrjaði að blikka í húsbílnum 😉








Frá Drammen hélt ég rakleitt til Svíþjóðar þar sem ég ætla að eyða næstu dögum á leiðinni til Álandseyja.