Maraþon keyrsla

Síðustu daga hef ég tekið nokkra langa keyrsludaga, samtals um 3600 km. Frá ferjunni í Kiel í Þýskalandi til Danmerkur, Noregs og svo suður Þýskalands til Austurríkis.

Ferðafélagi

Ég “skaust” til Noregs til að sækja ferðafélaga sem verður með mér næsta mánuðinn. Dóttir mín, Íris Arna, ákvað að hætta í skólanum í Noregi, henni fannst ekki nóg að gera þarna og vildi frekar eyða peningunum sínum í ferðalög þennan vetur heldur en skólagjöld í Bomlo. Ég keyrði því frá Kiel til Danmerkur og tók svo ferjuna frá Hirtshals til Kristiansands í Noregi. Keyrði þaðan í úrhellis rigningu til Bomlo, sótti Írisi og svo áfram yfir hálendi Noregs og til Svíþjóðar. Komum svo aftur til Danmerkur þar sem við gistum í nokkrar nætur í góðu yfirlæti hjá systur minni og fjölskyldu í Frederiksgård.

Austurríki

Frá Danmörku héldum við suður Þýskaland og til Rauris í Austurríki þar sem við ætlum að vera í nokkra daga, þvo þvott, þrífa bílinn og hlaða batteríin fyrir næsta tveggja mánaða ferðalag um Balkanskagann. Við fórum í nokkrar fjallgöngur í Rauris dalnum og keyrðum til Wagrain og hittum góða vini þar.

Um helgina leggjum við af stað til Slóveníu og þaðan suður Balkanskagann.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading