Stórfjölskyldan í Austurríki

Síðustu daga hefur verið mikið fjör hjá okkur í Rauris í Austurríki þar sem stórfjölskyldan hittist og áttum við dásamlega daga saman. Ættingjarnir komu víða að, frá Íslandi, Sviss, Danmörku, Noregi og Slóvakíu. Sumir voru á húsbílaferðalagi í Evrópu og gistu í bílunum sínum en aðrir gistu í húsi í Rauris.

Við fórum í gönguferðir, hjólaferð, sund, klifur og skoðunarferðir. Það var spilað, sungið, grillað og spjallað. Alltaf mikið fjör þegar stórfjölskyldan hittist. Takk fyrir skemmtilega samveru elsku fjölskylda 🙂

En núna eru allir farnir, Íris fór til Íslands í morgun, ásamt Lukku frænku sinni. Framundan hjá mér er ferðalag um Alpana næstu 2-3 vikur áður en ég held heim til Íslands eftir rúmlega ársferð á húsbílnum.

Síðustu gestirnir taka lestina til Munchen

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading