Nanna Bára Maríasdóttir og Hlíðar Sæmundsson leigðu sér húsbíl í Þýskalandi síðasta sumar og ferðuðust um Evrópu í mánuð. Þau segja mikilvægast að njóta hvers dags í stað þess að keyra marga kílómetra. Husbill.com ræddi við Nönnu Báru um ferðina.
Leigðu húsbíl í Frankfurt
Nanna Bára og Hlíðar skoðuðu nokkrar leigur og vildu fá góðan húsbíl og þau leigðu bílinn með löngum fyrirvara. Þau völdu Frankfurt sem er nokkuð miðsvæðis í Evrópu og þannig gætu þau haft tækifæri til að ferðast hvert sem er um Evrópu. Hún segir að það hafi verið mjög góð þjónusta á bílaleigunni, þeim var sýnt allt varðandi bílinn og þegar þau lögðu af stað þá kom á óvart hvað þetta var lítið mál. Hún segir að þetta sé ekki dýrt miðað við að vera bæði með bíl og gistingu, en bílaleigan sem þau skiptu við var McRent í Frankfurt.

Eiga húsbíl á Íslandi
Nanna Bára og Hlíðar eru vön að ferðast á húsbíl á Íslandi og eiga gamlan stóran amerískan húsbíl sem þau nota til ferðalaga öll sumur á Íslandi. Þau hafa einnig ferðast mikið erlendis en þó ekki á húsbílnum sínum.

Húsbílanámskeið góður undirbúningur
Nanna segir að námskeið um húsbílaferðir hjá husbill.com hafi verið góður undirbúningur. Þar hafi verið farið í ýmsa þætti varðandi undirbúning og að hún hafi fengið fullt af gagnlegum upplýsingum. Svo segir Nanna Bára, að það hafi verið gott að hitta fólk sem er í sömu pælingum. Hún segist líka hafa uppgötvað á námskeiðinu að það væri ekkert stórmál að ferðast á húsbíl um Evrópu.

Frelsið – einn dagur í einu
Nanna Bára segir að þrátt fyrir góðan undirbúning þá hafi þau ákveðið að taka bara einn dag í einu og njóta hvers áfangastaðar. Hún segir að mikilvægt sé að ætla sér ekki of mikið svæði til að ferðast um og að þau hafi valið að ferðast mest um Alpana og Suður Þýskaland. Það er mikið frelsi í því að ferðast um húsbíl og hún sagðist hafa náð að slaka vel á í ferðinni.

Gistu hjá bónda á víngarði
Þau gistu m.a.á bændagistingu í Ölpunum, á víngarði, þar sem þau kynntust heimafólki og borðuðu til dæmis með bóndanum á bænum. Þau pöntuðu gistinguna yfirleitt ekki fyrirfram, heldur notuðu Park4Night appið og Google maps. Þeim fannst auðvelt að finna gististaði, hvort sem var tjaldstæði eða húsbílastæði.
Litlu sveitabæirnir áhugaverðastir
Nanna segir að það sem sé svo áhugavert við þennan ferðamáta sé að kynnast og upplifa andrúmsloftið í litlu þorpunum. Hún nefnir sem dæmi að í einum litlum bæ þar sem þau sátu á torginu hafi allt í einu birtst fullt af börnum og foreldrum þeirra. Þar hafi verið uppskeruhátíð leikskólans og hún segir að það hafi verið gaman að upplifa stemninguna í bænum með íbúunum. Hún segir að það hafi komið á óvart að alls staðar sé allt mjög hreint, hvergi rusl og öll aðstaða á tjaldstæðum til fyrirmyndar.

Fjallgöngur í Austurríki
Nanna segir að þeim hafi fundist mjög gaman að nota kláfana í Austurríki til að komast hærra í fjöllin og fara þaðan í göngutúra og notið útiverunnar. Hún hreifst af landslaginu í Ölpunum og mælir með að ferðast þar. Þar er einnig fjöldinn allur af vötnum og einnig hægt að upplifa strandlífið þar.

Óvæntu staðirnir
Nanna Bára mælir með að skipuleggja ekki of mikið hvaða áfangastaðir fólk ætlar að heimsækja. Hún segir að það sem skilji mest eftir séu óvæntu staðirnir. Hún segir að þau hafi verið mikið á sveitavegunum og hún mælir ekki með hraðbrautunum. Það sé allt of stressandi en best sé að taka því rólega og láta hvern dag flæða.
Draumur að eiga húsbíl erlendis
Nanna Bára og Hlíðar ætla að halda áfram að ferðast á húsbíl, bæði heima og erlendis, en draumurinn er að hafa einn bíl í Evrópu og annan á Íslandi. Hún segir að það væri líka gaman að hafa rafmagnshjól meðferðis og geta þannig ferðast í kringum tjaldsvæðin á hjóli.
Kom mörgum árum yngri heim úr húsbílaferðinni
Nanna Bára segist hafa náð vel að slaka á í svona ferð, það hafi ekki verið neitt stress og hún segist hafa komið mörgum árum yngri heim úr ferðinni. Hún mælir sannarlega með húsbílaferð í Evrópu og segist hafa lært það á húsbílanámskeiðinu að ætla sér ekki að ferðast um of stórt svæði. Frekar að njóta ferðalagsins heldur en að hala inn kílómetrunum, segir Hanna Bára að lokum.

(Ljósmyndir: Nanna Bára)