Gisting á bændabýli

Að leggja húsbílnum í bakgarðinn hjá bóndanum er skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnum tjaldstæðum í Evrópu. FEFI eru samtök bændagistinga víðs vegar um Evrópu þar sem rúmlega 6.100 bændur bjóða upp á ókeypis gistingu fyrir húsbílafólk í 10 löndum. Gestgjafarnir eru bændur, brugghús, ostaframleiðendur, vínframleiðendur, kráareigendur og garðyrkjubændur, svo eitthvað sé nefnt. Gestum gefst kostur á…

Meira

Húsbílasýning í Austurríki

Ein af stærstu húsbílasýningum í Evrópu var haldin í Wels í Austurríki dagana 18.-22. október 2023. Sýningarsvæðið var í þremur stórum sýningarsölum auk útisvæðis í Messe Wels sýningarhöllinni. Yfir 180 sýnendur kynntu vörur sínar, húsbíla, tjaldstæði, húsbílavörur og fleira. Husbill.com var á svæðinu og það sem vakti mesta athygli var heill salur sem tileinkaður var…

Meira

Sjötugsafmælið á tjaldstæði á Balkanskaga

Magnea Björg Jónsdóttir hefur ferðast á húsbíl um Evrópu í nokkur ár og er núna stödd í Köln í Þýskalandi. Ferðinni er  heitir suður á bóginn, til Frakklands og þaðan til Spánar. Ég hitti Magneu í Vín í Austurríki síðasta vetur og lék forvitini á vita meira um hennar ferðalag. Fjórða árið á húsbílaflakki Magnea…

Meira

Nýr fréttavefur

Nú þegar ársferðalagi mínu á húsbíl um Evrópu er lokið þá hef ákveðið að breyta vefnum í fréttavef um húsbílaferðir í Evrópu. Á vefnum verða viðtöl við fólk á ferðalagi á húsbíl, pistlar um tjaldstæði, áhugaverða staði og akstursleiðir. Þar verða fréttir um húsbíla og allt sem viðkemur húsbílaferðum í Evrópu. Ef þú ert á…

Meira

Síðustu dagarnir

Nú styttist í heimferð eftir þessa rúmlegu árslöngu húsbílaferð um Evrópu. Ferðin hefur verið eitt stórt ævintýri og ótal margir áhugaverðir staðir sem ég hef heimsótt. Eftir því sem ég skoða fleiri staði þá sé ég hversu marga staði ég á eftir. Virgental í Austur-Tyrol Síðustu dögunum eyddi ég í Suður- og Austur Tyrol, en…

Meira

Fleiri fjallvegir

Eftir að stórfjölskyldan var farin heim á leið þá var komið að því að nýta síðustu þrjár vikurnar í Ölpunum. Á þessum árstíma streyma ferðamenn allstaðar úr Evrópu í Alpana og vinsælir ferðamannastaðir þéttsetnir. Ég ákvað því að skoða nokkra af litlu fámennari dölunum í Austurríki og Ítalíu. Áður en þangað var haldið þá skoðaði…

Meira

Stórfjölskyldan í Austurríki

Síðustu daga hefur verið mikið fjör hjá okkur í Rauris í Austurríki þar sem stórfjölskyldan hittist og áttum við dásamlega daga saman. Ættingjarnir komu víða að, frá Íslandi, Sviss, Danmörku, Noregi og Slóvakíu. Sumir voru á húsbílaferðalagi í Evrópu og gistu í bílunum sínum en aðrir gistu í húsi í Rauris. Við fórum í gönguferðir,…

Meira