Húsbílasýning í Austurríki

Ein af stærstu húsbílasýningum í Evrópu var haldin í Wels í Austurríki dagana 18.-22. október 2023. Sýningarsvæðið var í þremur stórum sýningarsölum auk útisvæðis í Messe Wels sýningarhöllinni. Yfir 180 sýnendur kynntu vörur sínar, húsbíla, tjaldstæði, húsbílavörur og fleira.

Husbill.com var á svæðinu og það sem vakti mesta athygli var heill salur sem tileinkaður var þeim sem eru að smíða og hanna sinn eigin húsbíl. Þar sýndu mörg fyrirtæki ýmsar útfærslur af húsbíla innréttingum, þaktjöldum og fleiri fylgihlutum fyrir húsbílahönnuði.

Mikil áhugi er á húsbílasmíði og það er af sem áður var að fólk þurfti að smíða allar innréttingar sjálft. Nú er hægt að fá ýmsar útfærslur og gerðir af stöðluðum innréttingum. Hægt er að setja saman innréttingar allt eftir eigin þörfum og notkun. Á sýningunni var mikið af innréttingum ætlaðar í minni sendibíla eins og VW en einnig stærri innréttingar í sendibíla.

Hér eru tenglar á nokkur fyrirtæki sem selja og hanna húsbílainnréttingar:

VanEssa mobilcamping

Van for fun – Camper Ausbau

Brome Van Camping

Qubiq camping module

Mavis- Die Campervan Revolution

SkyUp – þakhýsi

Salty-Blue Custom Campers

Essential Vans

Easygoinc -Vanlife zubehör

EVO Design

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading