Lengi dreymt um húsbílaferð um Evrópu

Ragnar Gunnarson og kona hans, María Ingibergsdóttir, dreymdi lengi um að kaupa sér húsbíl og ferðast um Evrópu. Sumarið 2022 létu þau drauminn rætast og keyptu VW California húsbíl, þau vildu lítinn bíl sem hægt væri að keyra um í litlum bæjum. Um sumarið ferðuðust þau um Ísland á meðan þau voru að læra á bílinn og héldu svo af stað með Norrænu til Danmerkur í október. Þau keyrðu þaðan suður Evrópu og til Spánar. Frá Spáni fóru þau með húsbílinn til Kanaríeyja þar sem þau höfðu vetursetu, þó ekki í húsbílnum. Ragnar segir að þau hafi getað notað húsbílinn eins og fólksbíl á Kanarí því að bíllinn sé það lítill og því þægilegt að keyra hann í þröngum götum og leggja í venjuleg bílastæði. Um jólin fóru þau með húsbílinn með ferju frá Gran Canarí til Tenerife.

María og Ragnar á góðri stundu í húsbílaferðinni

Eftir vetursetu á Kanarí fóru þau með húsbílinn með ferju til Spánar og keyrðu þaðan um Evrópu í nokkrar vikur. Þau fóru m.a. til Spánar, Portúgals, Andorra, Frakklands og Ítalíu. Ragnar segir að dvölin við Gardavatn hafi staðið uppúr og María nefnir líka Frakkland. Skemmtilegast finnst þeim að keyra um litlu bæina en þau fara helst ekki í stórborgir. Ragnar segir að það sé mjög þægilegt að ferðast á vorin, þá sé gott veður og færri ferðamenn. Þau pöntuðu aldrei tjaldstæðið fyrirfram og voru mjög heppin með gististaði.

Lítill húsbíll á þröngum götum

Ragnar mælir með að fólk láti draum sinn rætast um húsbílaferð í Evrópu og sagði að það væri ekkert erfitt að ferðast á húsbíl um Evrópu. Sjálfur er hann orðinn 76 ára og finnst ekki erfitt að keyra um þrönga vegi á Ítalíu. Hann segir það kost að vera á litlum húsbíl á þröngum götum í S-Evrópu, en næst ætlar hann að fá sér stærri húsbíl og dvelja þá meira í rólegheitum á tjaldstæðum, eins og þau gerðu við Gardavatn.

Kostur að vera á litlum húsbíl sem kemst í venjulegt bílastæði

Eftir ferðalagið síðasta vor fóru þau með Norrænu heim til Íslands og seldu þá húsbílinn, en hann var sérstaklega keyptur fyrir Evrópuferðina. Núna í vetur dvelja þau hjónin á Kanarí og ætla að koma heim í vor og halda áfram að ferðast.

(ljósmyndir: Ragnar Gunnarsson)

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading