Námskeið um húsbílaferðalög í Evrópu

Þá er þessu rúmlega árslanga húsbílaflakki um Evrópu lokið. Ég er komin heim til Íslands og daglegt líf að hefjast. Það er skrítin tilfinning eftir allt þetta ferðalag að hefja daglegt líf, fara í rútínu og mæta til vinnu. En samt alltaf gaman að koma heim og hitta vini, ættingja og samstarfsfélaga.

Ég hef fengið margar spurninga um þetta ferðalag, hvernig ég þori, hvernig ég hafi efni á þessu og hvernig ég hafi undirbúið mig. Ég hef því ákveðið að miðla reynslu minni til þess að aðrir geti látið draum sinn rætast um húsbílaflakk um Evrópu og ætla að halda námskeið núna í ágúst.

Námskeiðið hefst 14.ágúst og stendur í fjórar vikur. Það er á netinu og því hægt að taka þátt hvar sem er. Skipulag námskeiðsins er þannig að á mánudögum koma nokkrir stuttir fyrirlestrar sem hægt er að horfa á hvenær sem er, meðan námskeiðið stendur yfir. Á fimmtudögum eru umræðu-og fyrirspurnartímar á Zoom.

Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um:

  • Undirbúning húsbílaferðar
  • Ferðatími, ferðafélagar, að ferðast einn, að ferðast með börn
  • Vetrarferðir, langar ferðir, stuttar ferðir
  • Húsbílar, húsbílaleigur, að kaupa húsbíl, að ferðast á eigin húsbíl
  • Áfangastaðir, áhugaverðir staðir, þjóðgarðar, borgir, ferðamannastaðir
  • Tjaldstæði, stellplatz, freecamping
  • Vegakerfið, vegatollar, umferðarreglur, fjallvegir, hraðbrautir, LEZ (low emission zone)
  • Kostnaður
  • Vefsíður, öpp og bækur
  • Ýmis praktísk atriði
  • Spurningar og umræður

Nánari upplýsingar um námskeiði má finna hér

Ef þú vilt láta draum þinn rætast um Evrópuflakk á húsbíl þá skráðu þig þá á námskeið

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading