Sjötugsafmælið á tjaldstæði á Balkanskaga

Magnea Björg Jónsdóttir hefur ferðast á húsbíl um Evrópu í nokkur ár og er núna stödd í Köln í Þýskalandi. Ferðinni er  heitir suður á bóginn, til Frakklands og þaðan til Spánar. Ég hitti Magneu í Vín í Austurríki síðasta vetur og lék forvitini á vita meira um hennar ferðalag.

Á jólamarkið í Vín síðasta vetur

Fjórða árið á húsbílaflakki

Magnea er sálfræðingur að mennt og starfaði lengst af á Landsspítalanum. Hún hefur einnig starfað sem leiðsögumaður með þýska ferðamenn um Ísland, en hún lærði í Þýskalandi þar sem hún á marga góða vini. Árið 2014 tók hún ársleyfi frá vinnu og ferðaðist á húsbíl um Evrópu og eftir að hún fór á eftirlaun hefur hún meira og minna verið á húsbílaflakki.

Hún hefur ferðast víða um Evrópu og á Íslandi á húsbílnum sínum sem er að gerðinni Fiat Ducato. Hún keypti þann bíl árið 2021 en fyrir hafði hún átt gamlan Sprinter í nokkur ár.

Við Magnea hittumst á húsbílastæði í Vín

Ein á húsbílaflakki

Magneu finnst ekkert erfitt að ferðast ein á húsbíl. Það sem henni finnst kannski erfiðast er að taka ákvarðanir alltaf ein og að geta ekki deilt upplifun með öðrum. Hún hefur verið heppin á sínu ferðalagi og segir ekkert alvarlegt hafa komið fyrir. Nokkrum sinnum hefur hún þó þurft að fara með bílinn á verkstæði en segir að það hafi alltaf reddast og gengið vel.

Hún er dugleg að hafa ofan af fyrir sjálfum sér og leiðist sjaldan. Hún les bækur, skrifar dagbók og er í samskiptum við vini og vandamenn á netinu. Hún hefur kynnst mörgum á tjaldstæðum á ferðalögum sínum um Evrópu. Stundum fær hún líka fólk í heimsókn í húsbílinn. Þá sækir hún viðkomandi á einhvern flugvöll, þau þvælast saman á húsbílnum í nokkra daga og hún skilar þeim aftur á sama flugvöll eða einhvern annan.

Þegar Magnea velur gististaði þá notar hún mikið Park4Night appið og skoðar ummæli fólks um staðina áður en hún ákveður að gista þar. Stundum gistir hún á tjaldstæðum en oft á bílastæðum sem hún finnur í appinu. Hún hefur líka notað appið Seachforsites og GPS-tækið til að finna gististaði.

Síðasta vetur þegar Magnea varð sjötug, var hún stödd á tjaldstæði í Svartfjallalandi á Balkanskaganum. Hún segist hafa átt eftirminnilega afmælisdag þegar gestir og starfsfólk tjaldstæðisins hafi haldið veislu fyrir hana.

Góð ráð frá Magneu

Magnea stefnir á að ferðast áfram á húsbílnum meðan hún nennir og getur. Að lokum eru hér nokkur góð ráð frá Magneu til þeirra sem dreymir um að ferðast á húsbíl um Evrópu:

  • Ekki byrja á að hugsa um hættur
  • Erfiðleikar eru til að yfirstíga
  • Að vera á góðum bíl og að líða vel í bílnum sínum
  • Vera með gróft ferðaplan en líka sveigjanleika
  • Hafa einhverja afþreyingu, t.d.bækur, spil.
  • Að líta á húsbílinn sem heimilið sitt, ekki bara ferðalag.
  • Að hafa ekki of mikið af fötum með sér

Við óskum Magnea góðrar ferðar á húsbílaflakkinu.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading