Eyrún Anna Felixdóttir og Einar K. Haukson hafa ferðast um Ísland á húsbíl í fjölda ára og haustið 2022 héldu þau með Norrænu til Evrópu. Síðan hafa þau meira og minna verið á húsbílaflakki víða um Evrópu. Þau hafa geymt húsbílinn á flugvöllum í Evrópu, fljúga heim í nokkrar vikur eða mánuði og fara svo aftur út og halda áfram ferðalaginu.
Þau hjón eru mikið flökkufólk, hafa verið á breyttum Econline í mörg ár og Eyrún segir að það séu fáir staðir á landinu sem þau hafi ekki komið til. Fyrstu húsbílaferðina til Evrópu fóru þau með börnin árið 1989 og keyrðu þá mest um Norðurlöndin.
Breyttu sendibíl í húsbíl
Þau segja það mikið frjálsræði að ferðast um á húsbíl, að þurfa ekki að ákveða fyrirfram næsta áfangastað en þau segjast samt alltaf vera með gróft ferðaplan áður en lagt sé af stað. Núna eru þau á Benz Sprinter sendibíl sem þau breyttu í húsbíl. Þau eru með stóra sólarsellu á bílnum og innréttingarnar pöntuðu þau frá Evo Design í Bretlandi. Þau segja að það hafi verið smá púsl að setja þær saman og koma þeim inn í bílinn, en það hafi samt gengið vel. Gamli Econline bílinn þeirra er fjórhjóladrifin en ekki Sprinterinn og þau segja enga þörf á því að vera á fjórhjóladrifnum húsbíl þegar ferðast sé um Evrópu, en að það sé mjög gott á ferðalögum um Ísland. Þau eru því með Econline bílinn hér á íslandi en geyma Sprinterinn úti í Evrópu.



Skútusigling í Grikklandi
Haustið 2022 fóru þau með Norrænu til Danmerkur og keyrðu þaðan suður Þýskalands, til Austurríkis, Ítalíu og Grikklands. Í Grikklandi keyrðu þau um allt og flugu einnig til eyjarinnar Kos, þar sem þau fóru í ógleymanlega skútusiglingu með vinafólki. Í Aþenu gistu þau á hóteli og geymdu húsbílinn á bílastæði fyrir utan borgina. Þau mæla með að ef fólk vill skoða borgir að geyma þá húsbílinn á öruggu stæði fyrir utan borgina og gista á hóteli í miðbænum. Þannig sé mun afslappaðra að ferðast um borgina og skoða áhugaverða staði. Þau segja að það sé ekki spennandi að keyra um stórborgir í húsbíl. Þeim finnst líka góð tilbreyting á húsbílaferðalagi að gista á hótelum af og til, sérstaklega í borgum.

Frá Aþenu flugu þau heim til Íslands, en þau gátu geymt húsbíliinn í bílastæðahúsi við flugvöllinn í Aþenu, þangað til þau fóru aftur út nokkrum mánuðum seinna. Í þeirri ferð keyrðu þau m.a.um Ítalíu, Slóveníu, Makedóníu, Serbíu og Ungverjaland. Eftir það ferðalag þá skildu þau bílinn eftir í Budapest og flugu þaðan heim. Núna í haust héldu þau ferðalaginu áfram og keyrðu frá Budapest til Austurríkis og Þýskalands þar sem bíllinn er núna á bílastæði við Munchen. Þau segja það ekki dýrt að geyma bílinn á svona langtímabílastæði, í Grikklandi borguðu þau um 400 evrur fyrir sex mánaða geymslu.
Frelsið er yndislegt
Eyrún segist elska þetta frjálsræði við húsbílaferðir, að geta dólað sér á tjaldstæðum á morgnana og velt fyrir sér hvert eigi að fara þann daginn. Þeim finnst erfiðast þegar þau þurfa að leita að tjaldstæði þegar það er komið myrkur, annars finnst þeim ekki margt erfitt í svona ferð, enda hafa þau mikla reynslu í að ferðast um landið á húsbíl og eru sjálfbjarga með allt. Þau hjón eru með hjól með sér í húsbílnum og finnst það mikill kostur.

Þeim finnst mikill munur á að ferðast á Íslandi en í Evrópu. Í Evrópu er allur aðbúnaður á tjaldstæðum miklu betri, veðrið er betra og auðvelt að finna tjaldstæði, en þau notuðu mikið Park4Night appið.
Einar vill minna fólk á að þegar keyptir eru hraðbrautarmiðar þá þarf að líma þá strax í gluggann því að þau lentu í því að vera stoppuð af löggunni því að miðinn lá í glugganum en var ekki límdur í hann. Þau sátu uppi með 120 evru sekt fyrir að hafa ekki límt miðann í gluggann.
Framundan hjá þeim hjónum er að halda áfram að flakka um Evrópu á húsbílnum. Í janúar fara þau aftur út til Þýskalands og ætla að keyra um Alpana og fara á skíði. Þau segjast eiga eftir að skoða marga áhugaverða staði í Evrópu og næsta vor ætla þau að færa sig vestur í álfuna og ferðast um Spán og Portúgal.
