Að leggja húsbílnum í bakgarðinn hjá bóndanum er skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnum tjaldstæðum í Evrópu. FEFI eru samtök bændagistinga víðs vegar um Evrópu þar sem rúmlega 6.100 bændur bjóða upp á ókeypis gistingu fyrir húsbílafólk í 10 löndum.

Gestgjafarnir eru bændur, brugghús, ostaframleiðendur, vínframleiðendur, kráareigendur og garðyrkjubændur, svo eitthvað sé nefnt. Gestum gefst kostur á að skyggnast á bakvið tjöldin í landbúnaðarframleiðslunni og upplifa sveitamenninguna beint í æð.

Árgjald
Fyrirkomulagið er þannig að kaupa þarf árs áskrift í hverju landi fyrir sig og hægt er að gista í sólarhring á hverjum stað. Ætlast er til að gestir kaupi einhverjar afurðir frá bóndanum eða borði á veitingastaðnum, en það er samt ekki skilyrði. Panta þarf gistinguna fyrirfram í gegnum app eða senda tölvupóst. Á hverju býli eru aðeins nokkur pláss svo að stundum getur verið erfitt að fá laust stæði, sérstaklega á vinsælum stöðum á háanna tíma.

Hvert land er með vefsíðu með upplýsingum um bændagistinguna í því landi. Með áskrift í hverju landi fá áskrifendur bók eða app og límmiða í bílgluggan. Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðu hvers lands.