eyglor

Áramótin í Sviss

Eftir jólin í Rauris héldum við mæðgur af stað á húsbílnum áleiðis til Sviss. Við gistum tvær nætur á leiðinni og heimsóttum skíðasvæði í Alpachtal, sem heitir Ski Juwel. Alpachtal skíðasvæðið Þetta skíðasvæði er hluti af Superskicard skíðasvæðunum og er staðsett í Tyrol héraðinu, stutt frá Wörgl. Við gistum á camping í Kramsach og keyrðum…

Meira

Aðventan í Austurríki

Nú er orðið heldur betur jólalegt hérna í Austurríki, eins og reyndar heima á Íslandi. Snjór yfir öllu og öll skíðasvæði búin að opna. Í byrjun desember notaði ég tímann til að dytta að ýmsu hér í húsinu í Rauris, ásamt því að heimsækja skíðasvæði sem opnuðu snemma. Ég fór líka á jólamarkaði og í…

Meira

Haust í Austurríki

Eftir nokkurra daga hvíld í Rauris þá keyrði ég í austurátt með stefnuna á Ungverjaland. Á leiðinni þangað dólaði ég í tvær vikur í Austurríki og þar af fimm daga í höfuðborg landsins, Vín. Í Austurríki er nú að koma vetur eftir milt haust og hitastigið hefur lækkað mikið síðustu daga. Í bílnum er gasmiðstöð…

Meira

Grikkland

Síðustu dagar hafa verið alveg dásamlegir hér í Grikklandi. Við höfum notið veðurblíðunnar á ströndum Grikklands ásamt því að fara í hjóla-og gönguferðir. Frá Albaníu keyrðum við að vesturströnd Grikklands, rétt sunnan við ferjubæinn Igoumenitsa að litlu tjaldstæði við ströndina, Camping Sofas. Strandlífið í Grikklandi Ferðamannalífið í Grikklandi snýst mikið í kringum strandir, sól, sand,…

Meira

Fátækustu ríki Evrópu

Síðustu daga höfum við mæðgur ferðast um þrjú af fátækustu ríkjum Evrópu, Borsníu-Hersigóveníu, Svartfjallaland og Albaníu. Að keyra í gegnum þessi lönd, og þá sérstaklega Albaníu, vekur mann til umhugsunar um hversu gott við höfum það á vesturlöndum. Innviðir þessara landa eru í molum, vegakerfið ekki verið endurnýjað í tugi ára og mikið af yfirgefnum…

Meira

Maraþon keyrsla

Síðustu daga hef ég tekið nokkra langa keyrsludaga, samtals um 3600 km. Frá ferjunni í Kiel í Þýskalandi til Danmerkur, Noregs og svo suður Þýskalands til Austurríkis. Ferðafélagi Ég “skaust” til Noregs til að sækja ferðafélaga sem verður með mér næsta mánuðinn. Dóttir mín, Íris Arna, ákvað að hætta í skólanum í Noregi, henni fannst…

Meira