Eftir nokkra daga í Rauris þá keyrðum við suður Austurríki og til Slóveníu. Frá Villach fórum við fjallveg sem heitir Wurzenpass og liggur hann yfir landamærin til Slóveníu. Á leiðinni sáum við skilti um stríðsminjasafn, mynd af skriðdreka með nafninu Bunkermuseum. Það var búið að rigna mikið alla leiðina og ekki spennandi að fara í göngutúr í þannig veðri og safn var því ágætis hugmynd. Við skiltið var pínulítið bílastæði, fyrir 4-5 bíla og ekkert fólk og ekkert hús eða annað sem benti til að þarna væri safn. Við lögðum samt bílnum og ákváðum að kíkja nánar á þetta. Á skiltinu var ör inn í skóginn, frekar spúkí, upp bratta brekku og ekkert að sjá nema tré. En eftir smá göngu birtust nokkrir skriðdrekar og gamlir herbílar. Þarna var þá Bunkermuseum, neðanjarðarbyrgi og stríðsminjar. Mér var enn í fersku minni þegar ég fór ein inn í síðasta neðarjarðarbirgi en í þetta sinn var Íris með mér og við létum vaða. Fórum inn í hrörlegu steyptu neðanjarðarbirgin sem voru byggð og í notkun á árunum 1963 til 1995. Alveg mögnuð upplifun að ganga um neðanjarðabirgin þar sem allt var enn á sínum stað en síðustu ár hafa birgin verið notuð til heræfinga.









Eftir skoðunarferð á Bunkermuseum keyrðum við yfir landamærin til Slóveníu og að bænum Bled sem er við hið þekkta Bled vatn. Stutt frá bænum gistum við á tjaldstæði í tvær nætur. Hjóluðum svo að vatninu og kringum það. Mjög fallegur staður og gaman að skoða svæðið þegar það eru svona fáir ferðamenn á svæðinu.








Frá Bled keyrðum við í suður, í gegnum höfuðborgina Ljubljana og til Postojna. Þar skoðuðum við stærstu hella Slóveníu, Postojna Jama, sem mynda eitt stærsta hellakerfi í heimi. Það var stórkostleg upplifun að skoða þessu risastóru dropasteinshella og varla hægt að ná því á mynd.










Að því loknu keyrðum við á tjaldstæði í nágrenninu, pínulítið í bakgarði hjá þorpskránni. Frekar spúkí þegar við komum þarna að, en svo var þetta bara kósí og snyrtilegt tjaldstæði með villisvínum í bakgarðinum.

Daginn eftir keyrðum við eftir hlykkjóttum fjallvegi yfir til Króatíu til Riijeka. Tjölduðum þar rétt hjá í litlum bæ við ströndina. Ætlum að vera næstu daga í Króatíu.