Kólnar í veðri

Núna er farið að kólna í Evrópu og snjóa í fjöll í Ölpunum. Þrátt fyrir fallega sólardaga þá fer hitastigið á nóttunni niður undir frostmark og því kominn tími til að undirbúa sig fyrir vetrarferðamennsku.

Ítalía

Ég fór með ferju frá Igoumenitsa í Grikklandi til Brindisi á Ítalíu, sem er syðst á Ítalíu. Þaðan keyrði ég upp í landið, m.a.í gegnum þjóðgarð sem heitir því langan nafni National Park of the Lucanian Apennines Val d´Agri-Lagonegrese. Þarna eru nokkur af hæstu fjöllum Suður-Ítalíu og margar gönguleiðir í boði. Ég ákvað hins vegar að finna tjaldstæði eftir svefnlausa nótt á ferjunni og langa keyrsludaga síðust þrjá daga.

Rétt fyrir myrkur fann ég þetta fína tjaldstæði á ólífubúgarði lengst upp í sveit. Þó að salernisaðstaðan hafi verið frekar einföld þá var andrúmsloftið þægilegt, gömul kona að tína ólífur af trjánum og dóttir hennar sá um tjaldstæðið. Hún talaði ekkert nema ítölsku og notaði þýðingar-app til að hafa samskipti. Á tjaldstæðinu var lítill ekta ítalskur veitingastaður sem var því miður lokaður enda ferðamannatímabilinu lokið og fátt um ferðamenn á svæðinu.

Ég notaði kvöldið til að skipuleggja ferðalagið um Ítalíu en planið var að vera þar í viku til tíu daga. En eftir að hafa skoðað langtímaveðurspá þá ákvað ég að bruna hratt norður Ítalíu og komast til Austurríkis áður en færi að snjóa þar. Spáin gerði ráð fyrir snjókomu og kulda í lok vikunnar. Ég var enn á sumardekkjum og tók ekki sénsinn á að keyra á þeim í frosti og hálku í Ölpunum.

Veturinn nálgast

Ég keyrði til Rauris í Austurríki, en þangað eru um 1300 km frá Suður-Ítalíu og það tók mig tvo daga. Ég brunaði því framhjá mörgum fallegum stöðum sem ég ákvað að skoða betur þegar ég færi aftur til Ítalíu, þegar fer að vora. Í Rauris ætla ég að vera í nokkra daga og hlaða batteríin. Eftir rúmlega fjögurra mánaða ferðalag á húsbíl er gott að komast í hús í nokkra daga og slaka aðeins á og gera húsbílinn klárann fyrir veturinn. Hann er nú kominn á vetrardekk og að verða klár fyrir kaldar vetrarnætur. Ég er búin að taka öll sumarfötin, stuttbuxur og kjóla, úr húsbílnum og setja úlpur og síðar buxur í fataskápana í bílnum. Hjólið og paddlebord-ið verður eftir í Rauris og skíðin fara inn í staðinn. Og til að taka smá forskot á veturinn þá skellti ég mér á skíði á Kitzsteinhorn jökulinn. Þar var margt um manninn, fjölmennir æfingahópar, skíðafélög frá ýmsum löndum og því langar raðir í þessar fáu lyftur sem voru opnar.

Ég hlakka til vetrarins, en þá ætla ég að nota tímann og fara á eins mörg skíðasvæði í Austurríki og ég get. Ég keypti Superskicard, sem gildir á 85 skíðasvæði í Salzburger héraðinu og nágrenni, svo það er um nóg að velja.

Næstu vikur ætla ég að ferðast um Austurríki, Ungverjaland og Slóvakíu. Kem svo aftur til Rauris í desember þar sem ég ætla að eyða jólunum með börnum og tengdadætrum.

Leave a Reply

Discover more from husbill.com

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading