Nú er orðið heldur betur jólalegt hérna í Austurríki, eins og reyndar heima á Íslandi. Snjór yfir öllu og öll skíðasvæði búin að opna. Í byrjun desember notaði ég tímann til að dytta að ýmsu hér í húsinu í Rauris, ásamt því að heimsækja skíðasvæði sem opnuðu snemma. Ég fór líka á jólamarkaði og í göngutúra. Um miðjan desember kom dóttir mín frá Asíu þar sem hún er búin að vera á ferðalagi í tvo mánuði ásamt vinkonu sinni. Þær upplifðu ýmis ævintýri í Thailandi, Vietnam og Kambódíu.









frá Zell am See til Kaprun




Um síðustu helgi kom elsti sonur minn, ásamt kærustu sinni, í heimsókn og við héldum litlu-jólin, þar sem þau geta ekki verið með okkur yfir jólahelgina. Við fórum á skíði í Rauris og nutum samverunnar yfir helgina.


Skíðasvæðin
Núna síðustu vikuna fyrir jól eru öll skíðasvæði opin og það er frábær tími til að vera á skíðum. Það er fámennt í brekkunum og fyrir þá sem gista á hótelum þá er miklu ódýrara að vera á þessum tíma heldur en yfir jólin. Sum skíðasvæði opnuðu að hluta til í byrjun desember og smám samana hafa hin svæðin verið að opna. Á sumum skíðasvæðum er ekki hægt að skíða niður í dal og þarf því að taka kláf niður. Síðustu daga hefur verið mikið frost og snjóað töluvert og í brekkunum er því blandaður náttúrulegur snjór og framleiddur snjór.









Krampus
Í Austurríki eru ýmsar jólahefðir eins og í flestum löndum og eitt af því sem tilheyrir aðventunni hér er þegar Krampus kemur í heimsókn í byrjum desember. Krampus er eins konar Grýla og Leppalúði okkar Íslendinga sem leitar að óþekkum börnum. Ungir menn klæðast gæru-búningum með stórar og grimmilegar grímur. Grímurnar eru skornar út í tré og geta verið nokkur kíló að þyngd. Krampus gengur um götur bæjarins að kvöldi 5.desember með miklum látum, en þeir bera stórar háværar bjöllur aftan á sér. Það er mikið fjör hjá yngri kynslóðinni þegar Krampus hleypur á eftir krökkunum og reynir að flengja þau með písk úr trjágreinum.






Í kringum þessa hefð er víða mikil hátíð og í stærri bæjum eru stórar skrúðgöngur þar sem St.Nikulaus gengur fremst með fjölda Krampusa í fylgd með sér. Í litlum bæjum eins og Rauris, þá er hægt að panta Krampus í heimsókn og það tók Krampus nokkra daga hérna að heimsækja bæjarbúa og það var því oft mikið fjör í götunni þegar Krampus átti leið hjá. Einn daginn tóku krakkarnir líka þátt og léku Krampus. Mjög skemmtilegt.