Akureyringarnar Helgi Haraldsson og Greta Benjamínsdóttir fóru á húsbíl sínum með Norrænu frá Íslandi í júní í þessu ári og ferðuðust um Evrópu í 10 vikur. Bílinn er af tegundinni Citroen Hobby og er fjórði húsbíllinn þeirra. Þau lögðu áherslu á að fá sér nettan bíl þar sem hægt væri að hafa hjólin inn í bílnum og einnig að auðveldara væri að ferðast inn í borgum. Þau eru með sólarsellur og inverter og geta því hlaðið hjólin í bílnum. Þau segja að það sé skynsamlegt að fara með húsbílinn með Norrænu ef ætlunin er að vera í langan tíma en mæla með að leigja húsbíl þegar ferðast er í stuttan tíma.

Helgi og Greta keyrðu um Danmörk, Noreg, Svíþjóð og Þýskaland. Þau fóru á nokkur söfn og heimsóttu einnig vini og ættingja á ferðalaginu. Þau sögðust líka hafa kynnst fullt af fólki á ferðalaginu og á tjaldstæðum. Þeim fannst gott að geta bjargað sér á norðurlandamálum, ensku og þýsku.
Hittu fjölskylduna í Þýskalandi
Þeim fannst erfitt að fara frá barnabarninu í svona langan tíma en þau leystu það með því að hitta fjölskylduna í Þýskalandi og eyða viku með þeim í bústað. Þau keyrðu líka um Holland, Belgíu og Lúxemborg. Þeim fannst skemmtilegast að keyra sveitavegina í gegnum litlu bæina og þá var gott að vera ekki á of stórum húsbíl.
Hjólað um alla Evrópu
Helgi og Greta hafa ferðast víða um Evrópu og fara árlega í hjólaferð í Evrópu. Þeim finnst skemmtilegast að ferðast um Þýskaland, til dæmis Moseldalinn, Svartaskóg, Rínardalinn og Suður-Þýskaland. Þeim finnst mikið frelsi felast í því að ferðast um á húsbíl, þá þurfi ekki að leita að hóteli eða að vera búin að panta það fyrirfram. Í húsbíl er hægt að ákveða næturstað með stuttum fyrirvara og dvelja eins lengi og maður vill á hverjum stað.

Fornbílahittingur
Greta skrifar dagbók til að geta rifjað upp leiðina og haldið utan um þá áfangastaði sem þau heimsóttu. Stundum upplifðu þau óvænt atvik eins og þegar þau sáu skilti um fornbílasýningu sem þau ákváðu að skoða. Seinna kom í ljós að þetta var stór hittingur fornbílaeiganda og hundruð fornbíla út um allan bæ.

Það var mjög heitt í Evrópu á þessum tíma en þau eru með loftkælingu í bílnum sem þau sögðust aldrei hafa notað á Íslandi, þar notuðu þau bara miðstöðina. En í ferðinni virkaði loftkælingin ekki sem skildi og þau létu gera við hana. Starfsmaðurinn á verkstæðinu fannst skrítið að þau hefðu aldrei notað loftkælinguna þó að þau hafi átt bílinn í 4 ár. Helgi útskýrði þá fyrir þeim að á Íslandi notar fólk miðstöð í húsbílunum en ekki loftkælingu.

Það sem Helga og Gretu finnst skemmtilegast við að ferðast á húsbíl er frelsið og að ráða sér sjálfur. Það sem kannski helst kom á óvart var að það þurfti að panta tjaldstæði í Svíþjóð, annars gátu þau alltaf keyrt á tjaldstæði og fengið pláss ef þau komu fyrir tvö á næturstað. Þau segja að það þurfi að passa sig á því að koma ekki of seint á tjaldstæðin, því að þá er ekki víst að það sé laust stæði á þessum tíma árs.

Þau gistu oft á húsbílastæðum (stellplatz) eða bátabílastæðum, sem var oft nálægt miðbæjum. Þau sögðu að það hefði oft verið rútínan hjá þeim að leggja snemma af stað, keyra á húsbílastæði eða bílastæði við bátahöfn um hádegi, til að fá pláss þar. Þá hefðu þau haft góðan tíma það sem eftir var dagsins til að skoða bæinn og héldu svo af stað næsta dag.
Greta nefndi að þau hafi mest notað Camper Contact appið til að finna tjaldstæði. Í appinu er gott að lesa umsagnirnar frá öðrum tjaldgestum segja þau.

Helgi segir að það sé frábært að vera með hjólin með sér, hægt sé að hjóla út um allt í borgum. Þau notuðu gervigreindina og Google Map til að aðstoða við að finna áhugaverða staði. Það þarf ekkert að skipuleggja ferðalagið allt fyrirfram segja þau en þau höfðu samt undirbúið sig með því að gera lista yfir ýmis áhugaverð söfn og fólk sem þau vildu heimsækja.
Hættu snemma að vinna
Ferðin gekk mjög vel og þau stefna á að fara aftur til Evrópu í húsbílaferð og þá í styttri tíma og leigja húsbílinn. Þau hvetja fólk til að hætta sem fyrst að vinna og nota tímann til að njóta lífsins og ferðast. Þau segja að þetta sé ævintýri og að gaman hafi verið að hitta allt það fólk sem þau hittu á ferðalaginu.
