Þeir sem velja að leigja sér húsbíl í Evrópu geta valið úr mörgum bílaleigum. Flestar hefðbundnar bílaleigur eru ekki með húsbíla til leigu en hér að neðan eru dæmi um nokkrar bílaleigur sem bjóða uppá að leigja húsbíla af öllum stærðum og gerðum.

Verð
Verð á bílaleigubílum fer eftir því hvenær bíllinn er leigður og getur munað töluverðu á verði t.d.á vorin, haustin eða um hásumarið. Oft er hægt að leigja ýmsan aukabúnað með bílnum, s.s.borð, stóla, sængur og eldhúsbúnað. Huga þarf vel að tryggingum og að bíllinn sé tryggður í þeim löndum sem ætlunin er að ferðast um. Margar leigur leggja á aukagjald þegar farið er yfir landamæri, stundum ákveðið fast gjald og stundum daggjald. Þessi aukagjöld eru innheimt á staðnum og geta hækkað verðið umtalsvert ef ferðast er í langan tíma.
Nokkur góð ráð
Hér eru nokkur gagnleg ráð sem gott er að hafa í huga þegar leigja skal húsbíl (heimild: ADAC)
- Gefið ykkur tíma til að sækja húsbílinn, það getur tekið allt að 30-60 mínútur að fá bílinn afhentan, þar sem bílaleigan þarf að fara yfir ýmsar búnað bílsins, s.s.salerni, gas, vatn ofl.
- Gefið ykkur góðan tíma í aksturinn og gerið ráð fyrir að keyra hægar á húsbíl en á hefðbundnum fólksbíl. Það sparar einnig eldsneytiskostnað að keyra ekki hraðar en á 90-100 km/klst hraða. Meðal húsbíll eyðir um 9-14 lítrum af díselolíu á 100 km.
- Raðið búnaði rétt í húsbílinn þannig að léttari hlutir, s.s.föt, þurrmatur og plastáhöld séu í efri skápum og þyngri búnaður, s.s.dósamatur, drykkir og pottar séu í neðri skápum og skúffum.
- Pantið tímanlega til að fá betra verð og fleiri valmöguleika varðandi bíla. Betra verð fæst einnig með því að bóka utan háannatíma. Oft er afsláttur þegar bókaðar eru þrjár vikur eða meira.
- Gerið grófa ferðaáætlun og ef ferðast er á háannatíma getur verið nauðsynlegt að panta tjaldstæði tímanlega á vinsælum ferðamannastöðum.
- Gerið ráð fyrir kostnaði við ferjur og vegatolla. Þegar ferðast er með ferjum getur munað verulega á verði eftir lengd bílsins. Oft er miðað við 6 m langan bíl og því gott að hafa það í huga þegar verið er að panta húsbílinn.
- Veljið rétta stærð af húsbíl. Skoðið ökuskírteinið ykkar og athugið hversu stóran húsbíl þið megið keyra. Veljið stærð húsbíls miðað við fjölda farþega, hversu margir þurfa að sofa í bílnum og hvaða árstíma er verið að ferðast. Á sumrin er jafnvel hægt að hafa tjald meðferðis og því ekki nauðsynlegt að allir geti sofið í bílnum.
- Ef þið ætlið að leigja allan búnað með bílnum, s.s.sængur/kodda, borðbúnað, borð og stóla o.fl. þá þarf að panta það um leið og bíllinn er pantaður. Athugið að gæði aukabúnaðar er mjög misjöfn eftir bílaleigum.
- Ef þið leigið húsbíl af einkaaðilum (ekki viðurkenndum húsbílaleigum) verið þá viss um að bíllinn sé rétt tryggður.
- Gott er að hafa meðferðis tjaldstæðakort til að fá afslátt á tjaldstæðum. Nokkrar tegundir eru til en hjá FÍB er hægt að fá alþjóðlegt CCI-camping kort.
- Hægt er að hlaða niður alls konar tjaldstæða öppum í símann. Hér er grein um bækur og öpp.
