Salzburger héraðið (Salzburgerland) í Austurríki er eitt af níu héruðum landsins, staðsett í miðju landinu og þar eru hæstu fjöllin og dalirnir. Í Salzburger landi, ásam Tyrol, eru líka flest skíðasvæðin enda í miðjum Ölpunum. Í Salzburgerlandi er m.a. Rauris, Flachau, Wagrain, Zell am See, Kaprun, St.Johann i.Pongau, Saalbach, Hinterglemm, Leogang, Maria Alm, Gastein, Grossarl, Neukirchen og fleiri fallegir fjallabæir. Stærsti bærinn er svo Salzburg en þar búa um 155 þúsund manns.

Gastein dalur
Síðustu daga hef ég verið að flakka um litlu dalina í Salzburgerhéraði. Ég fór frá Rauris yfir í næsta dal, Gasteinertal. Þar keyrði ég inn í enda dalsins, að Sportgastein, þar sem er hæsta skíðasvæði á SkiAmade skíðasvæðinu, 1590-2650 m. Á sumrin eru gönguleiðir þarna en svæðið er hluti af Hohe Tauern þjóðgarðinum, stærsta þjóðgarði Austurríkis. Ég gekk og hjólaði um svæðið og gisti þar eina nótt í húsbílnum á bílastæðinu.








Grossarl dalur
Því næst keyrði ég í næsta dal, Grossarl dal, en þar er einnig skíðasvæði og þjóðgarður. Ég gisti eina nótt í dalnum og hjólaði svo lengra inn í dalinn. Í þessum litlu dölum er mjög fallegt og ekki svo mikið af túristum, en núna er háannatími á helstu ferðamannastöðum landsins. Þessa helgi hefst frí í Bayern í Þýskalandi og mikil umferðarteppa á hraðbrautum í Suður-Þýskalandi og í gegnum Austurríki. Ég hélt mig því bara á sveitavegum Austurríkis og ákvað næst að fara til Altenmarkt og gista þar eina nótt. En bærinn er of nálægt hraðbrautinni og því ekkert laust á tjaldstæðinu þar né í næstu bæjum. Á þessum árstíma þarf að panta tjaldstæði til að fá stæði.








Pillersee dalur
Ég keyrði því til Salzburgar og þaðan eftir sveitavegum í vesturátt og endaði í Pillersee dal, sem er á mörkum Salzburgarhéraðs og Tyrol. Þar gisti ég eina nótt í litlum bæ sem heitir Waidring og keyrði svo áfram inn dalinn og gisti næst á litlu sveita tjaldstæði hjá Hochfilzen. Veðrið var ekki eins heitt og verið hefur en það komu nokkrar allhressilegar dembur með tilheyrandi þrumum og eldingum.






Svæðið frá Pillersee dal, Sankt Jakob in Haus (já, bærinn heitir það ;-), Fieberbrunn og Hochfilzen er þekkt gönguskíðasvæði, en það tilheyrir Tyrol svæðinu og er rétt hjá Kitzbühel, sem er vinsælt skíðasvæði sem margir þekkja. Frá þessum bæjum blasir við risastór kross upp á fjalli, sem ég ákvað að skoða nánar. Þessi kross, Jakobskreuz, var byggður árið 2014 og er tæplega 30 m hár uppá fjallinu Buchensteinwand (1462 m). Krossinn er sex hæðir og þar er sýningasalur, veislusalur, kapella og útsýnispallar. Ég hjólaði upp á fjallið og skoðaði þetta stóra kennileiti. Mjög skemmtileg hjólaleið og frábært útsýni yfir næstu dali og fjöll.








Í dag keyrði ég svo til Rauris en ég á von á gestum þangað næstu daga 🙂